Konu sem starfaði sem forstöðumaður umhverfis- og sorpmála hjá Akureyrarbæ hefur verið sagt upp störfum vegna ásakana um að hún hafi áreitt undirmann sinn kynferðislega. Töluverðar gagnrýni hafði hlotið þegar sambýlismaður og barnsfaðir þessarar sömu konu var ráðinn sem ráðgjafi vegna sorptunnuskipta bæjarins.
Eins og DV greindi frá nýlega gætti töluverðrar óánægju með ráðninguna en samkvæmt ábendingum sem DV bárust var vafi talinn leika á að maðurinn væri hæfur til að annast þessa ráðgjöf en þó nokkurrar óánægju hefur gætt meðal bæjarbúa með sorptunnuskiptin sem hafa þótt ganga hægt. Farið var í skiptin vegna breytinga á lögum og aukinna krafna um sorpflokkun í kjölfar þeirra en þessar breytingar ættu flestir íbúar hér á landi að kannast við.
Guðríður Erla Friðriksdóttir sviðsstjóri Umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar var yfirmaður umræddrar konu en Guðríður tjáði DV að það hefði verið hún sjálf en ekki konan sem réð manninn til starfa. Guðríður viðurkenndi það í samtali við RÚV að eftir á að hyggja hefði átt að huga betur að tengslum konunnar og mannsins. Vildi Guðríður hins vegar meina að maðurinn hefði verið vel hæfur til að annast ráðgjöfina.
RÚV greindi síðan frá því fyrr í dag að konunni hafi verið sagt upp störfum vegna ásakana um kynferðislega áreitni í garð undirmanns, á árshátíð bæjarins í október í fyrra, en hún hafði verið í leyfi í nokkurn tíma eftir að þær ásakanir komu fram. Samkvæmt heimildum RÚV höfðu fleiri einstaklingar sakað konuna um ósæmilega hegðun.
Guðríður sviðsstjóri sagðist ekki geta tjáð sig við RÚV um málefni konunnar.