fbpx
Fimmtudagur 27.febrúar 2025
Fréttir

María Heimisdóttir skipuð landlæknir

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 27. febrúar 2025 16:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Settur heilbrigðisráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, hefur skipað Maríu Heimisdóttir í embætti landlæknis til næstu fimm ára.

Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðs.

Um feril Maríu segir:

„María lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1990, MBA námi frá University of Connecticut 1997 og doktorsprófi í lýðheilsu frá University of Massachusetts árið 2002. María starfaði hjá Íslenskri erfðagreiningu frá árinu 1999 til 2003 og á Landspítala árin 2003 til 2018, meðal annars sem yfirlæknir hagdeildar og framkvæmdastjóri fjármála, auk þess sem hún leiddi þróun rafrænnar sjúkraskrár um árabil. María var forstjóri Sjúkratrygginga Íslands frá 2018 til 2022 og árin 2023-2024 starfaði hún sem ráðgjafi stýrihóps Nýs Landspítala ohf. fyrir heilbrigðisráðuneytið. Frá því í ágúst á liðnu ári hefur hún verið yfirlæknir á upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún hefur enn fremur sinnt kennslu og rannsóknum samhliða öðrum störfum og er varamaður í háskólaráði HÍ.“

Þá segir um mat lögskipaðrar hæfnisnefndar um hæfni Maríu:

„Það er mat hæfnisnefndar að víðtæk háskólamenntun Maríu á fleiri en einu sviði nýtist mjög vel í starfi, auk sérfræðimenntunar í læknisfræði en sérgrein hennar er lýðheilsufræði. Þá sé hún reynslumikill og farsæll stjórnandi með langvarandi reynslu á sviði rekstrar og fjármála. Í umsögn nefndarinnar segir m.a. að að María hafi afburða leiðtogahæfni, farsæla reynslu af stjórnun og rekstri.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Fiskikóngurinn hefur ekkert að fela -„Það skíta allir upp á bak, bara spurning hvernig þú skeinir þér, ég er mjög vel skeindur“

Fiskikóngurinn hefur ekkert að fela -„Það skíta allir upp á bak, bara spurning hvernig þú skeinir þér, ég er mjög vel skeindur“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Þurfum við íslenskan her? Ólína segir að herleysi sé einmitt styrkur Íslendinga

Þurfum við íslenskan her? Ólína segir að herleysi sé einmitt styrkur Íslendinga
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Haaland snéri aftur og tryggði sigur – Hörmungar Arsenal og Maguire hetja United

Haaland snéri aftur og tryggði sigur – Hörmungar Arsenal og Maguire hetja United
Fréttir
Í gær

Afmyndaðist eftir fjögurra ára kókaínnotkun – „Mér hryllti við útliti mínu“

Afmyndaðist eftir fjögurra ára kókaínnotkun – „Mér hryllti við útliti mínu“
Fréttir
Í gær

Segir ámælisvert að ekki sé búið að banna umskurð drengja á Íslandi

Segir ámælisvert að ekki sé búið að banna umskurð drengja á Íslandi
Fréttir
Í gær

Bjarni Már segir að Íslendingar þurfi að stofna her og leyniþjónustu

Bjarni Már segir að Íslendingar þurfi að stofna her og leyniþjónustu