Þetta segir Flosi í viðtali við Morgunblaðið í dag en blaðið greindi frá því í gær að starfslokasamningur Ragnars Þórs Ingólfssonar, þingmanns Flokks fólksins og fyrrverandi formanns VR, hefði numið um 10 milljónum króna.
Sjá einnig: Segja Ragnar Þór hafa þegið biðlaun upp á um 10 milljónir króna samhliða þingfarakaupi
Ragnar átti rétt á sex mánaða biðlaunum samkvæmt ráðningarsamningi og óskaði hann eftir eingreiðslu þeirra og hefur uppgjörið farið fram. Ragnar hefði þó getað afþakkað biðlaunin þar sem hann var kominn með nýja vinnu á Alþingi.
Í yfirlýsingu sem Ragnar Þór birti á Facebook-síðu sinni í gær sagðist hann hafa fullan skilning á því að málið slái fólk illa. Benti hann þó á að hann hefði ákveðið, þegar hann tók við formennsku í VR árið 2017, að lækka laun sín um 300 þúsund á mánuði en ein af forsendum þess var að halda öðrum réttindum eins og biðlaunum sem eru alla jafna sex mánuðir hjá forystufólki innan verkalýðshreyfingarinnar.
Sjá einnig: Ragnar Þór svarar fyrir biðlaunin – „Hef fullan skilning á því að þetta slái fólk illa“
Þá sagði hann að ástæðan fyrir því að hann og eiginkona hans hafi ákveðið að halda biðlaununum hafi fyrst og fremst verið sú að hann hafi litið á biðlaunin sem mjög tímabundna afkomutryggingu þar sem forystufólk í verkalýðshreyfingunni hefur jafnan átt erfitt uppdráttar á vinnumarkaði eftir starfslok.
Flosi segir við Morgunblaðið að hann myndi fara aðra leið ef hann yrði kjörinn formaður VR.
„Ef ég væri kosinn þá myndi ég ekki semja svona,“ segir hann og bætir við að eflaust sé rétt hjá Ragnari að forystufólk í verkalýðshreyfingunni geti átt erfitt uppdráttar á vinnumarkaði eftir starfslok.
„Auðvitað vitum við það að fólk sem hefur verið áberandi í verkalýðshreyfingu og umræðum getur átt í meiri vandræðum með að fá vinnu almennt. En ég held samt að menn verði bara að gera sér grein fyrir því þegar þeir sækjast eftir svona starfi,“ segir Flosi við Morgunblaðið og telur að formaður VR eigi að hafa svipuð kjör varðandi uppgjör og starfslok og annað fólk á almennum vinnumarkaði.