fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Fréttir

Dóri DNA á tímamótum – „Það vorkennir manni enginn“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 21. febrúar 2025 17:30

Dóri DNA var valinn Mosfellingur ársins 2023 Mynd: Mosfellingur/Raggi Óla

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Laxness Halldórsson leikari, höfundur og uppistandari, stendur nú á ákveðnum tímamótum en hann er að flytja.

„Sem er eitthvað það erfiðasta sem hægt er að gera eftir þrítugt. Og það allra versta við það er að það vorkennir manni enginn.“

Dóri segir í gamansamri færslu á X að hann hafi aldrei búist við því að flytja aftur. Hann hafi ekkert séð nema gömlu íbúð sína og fjölskyldunnar. Hann hafi elskað að hanga þar. En nú þarf hann að byrja upp á nýtt og búa til góðan stað til að hanga á.

„Ég er örlaga hangari. Elska að hanga. Sem barn hékk ég eiginlega bara með gömlu fólki sem útskýrir kannski persónuleika minn í dag. Seinna þegar ég fór að hanga einn – þá áttaði ég mig á því að sumir staðir eru búnir þessum hangs-göldrum á meðan aðrir, sama hvað er eytt í þá – eru og verða það aldrei staðir til að hanga á.“

Dóri rifjar upp staði sem hann hékk á og líklega fleiri muna eftir í Kjarnanum í Mosfellsbæ, Kjuðinn, snóker og spilatækjasalur, og Pizzabær.

„Kjuðinn. Ég var 12 ára og var skíthræddur við krakkana sem dældu fimmtíu körlum í Virtual Superstar Soccer og Street Fighter. Það var meira að segja reykt inni þarna.

Seinna þegar Pizzabær fluttist frá Þverholtinu í Kjarnann varð hann að heitum hangsreit sem var kjörinn fyrir fólk sem var að knýja á dyr unglingsáranna.“

Segir allan daginn fara í að hugsa um hvar hann eigi að hanga

Í dag þegar Dóri er orðinn fertugur segir hann daginn allan eiginlega fara í að „hugsa um næsta stað þar sem ég lagt mín feitu bein og hugsað um næstu skref til að taka ekki.“

Dóri hefur lýst yfir mikilli hrifningu sinni með fyrirhugað Blikastaðaland og rómar það aftur í þessari færslu. Og segist hann til í samtal við bæjarbúa um hvaða staði megi opna þar fyrir fólk að hanga á.

Sjá einnig: Dóri DNA segist með Mosfellsbæ á heilanum – „Þarna er hugsað stórt og ég elska þegar það er hugsað stórt“

„Ég veit ekki alveg hvað einkennir góða hangs location – ætli það sé ekki það sama og einkennir gott borgarrými. Staðnum þarf að vera vel við haldið, hann þarf að vera upplýstur, helst að staðurinn sé stefnumót margra kynslóða með mismunandi erindi – en umfram allt þarf einhver að elska staðinn. Kjuðinn eins hræðilegur og hann var kannski í endurliti var samt sem áður elskaður af eigendum og gestum, Pizzabær var það líka þar til hann var seldur til stórrar keðju – keðjan elskaði ekki staðinn, og í kjölfarið gestirnir ekki heldur.

Nú mun eitthvað glæsilegt rísa í hlaði gamla bæjarins á Blikastöðum. Ekki bara einhver þjónustukjarni sem klastraður saman í kringum stálgrindarhús, heldur eitthvað alvöru, eitthvað sem hefur verið elskað í gegnum tíðina.“

Óskar eftir hugmyndum

Dóri segir samtalið hafið og margar góðar hugmyndir og pælingar komnar.

„En mikill vill meira, og hér eins og sagt var í Þverholti árið 1999 – eru menn að leggja metnað í hangsið.Mig langar rosalega mikið að taka spjallið við bæjarbúa og bara þá sem hafa einhverja sýn. Emailið mitt er dorinr1@gmail.com – neglið á mig bara einhverju. Í versta falli verður þetta bara gott hangs.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Fjörugar athugasemdir eftir kvörtun miðborgarbúa vegna hávaða, hrópa og úrgangslosunar – „Costco er bæði með partýbleyjur og poka“

Fjörugar athugasemdir eftir kvörtun miðborgarbúa vegna hávaða, hrópa og úrgangslosunar – „Costco er bæði með partýbleyjur og poka“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Börnum í Breiðholtsskóla stíað í sundur – „Reyndur skólamaður“ ráðinn til að taka á ástandinu

Börnum í Breiðholtsskóla stíað í sundur – „Reyndur skólamaður“ ráðinn til að taka á ástandinu
Fréttir
Í gær

Lokaði augunum og keyrði á hringtorg

Lokaði augunum og keyrði á hringtorg
Fréttir
Í gær

Sambýlismaður yfirmanns sorpmála var ráðinn sem ráðgjafi við breytingar á sorphirðukerfi Akureyrar – Sviðsstjóri játar mistök

Sambýlismaður yfirmanns sorpmála var ráðinn sem ráðgjafi við breytingar á sorphirðukerfi Akureyrar – Sviðsstjóri játar mistök
Fréttir
Í gær

Segir ekkert hæft í umdeildu atviki í World Class og spyr hver beri ábyrgð – „Mannorðsmorð“

Segir ekkert hæft í umdeildu atviki í World Class og spyr hver beri ábyrgð – „Mannorðsmorð“
Fréttir
Í gær

Var sakaður um barnaníð í skilaboðum til unnustu og nafnlausri færslu á Facebook – „Ég vil að þú vitir hvernig maður þetta er“

Var sakaður um barnaníð í skilaboðum til unnustu og nafnlausri færslu á Facebook – „Ég vil að þú vitir hvernig maður þetta er“