Norska ríkisútvarpið skýrir frá þessu og segir að með þessum orðum hafi Zelenskyy varað leiðtoga Evrópuríkja við fyrirætlunum Rússa því hann sagði jafnframt að Úkraínumenn hafi upplýsingar um að Rússar ætli að senda hermenn til Belarús í sumar undir því yfirskini að um „æfingar“ sé að ræða.
„Það er nákvæmlega þannig sem þeir settu þetta upp fyrir innrásina í Úkraínu fyrir þremur árum,“ sagði hann og bætti síðan við: „Er rússnesku hersveitunum í Belarús ætlað að ráðast á Úkraínu? Kannski, kannski ekki. Kannski eru þær ætlaðar ykkur.“
Hann sagði einnig að Pútín „telji greinilega að Belarús sé bara rússneskt hérað“.
„Við verðum að vera raunsæ. Við neyðumst til að spyrja okkur: Hvað eigum við að gera varðandi þetta? Og það sem er enn mikilvægara: Hvað getum við gert fyrir næstu árás? Fyrir næstu innrás?“
Hann spurði leiðtogana síðna hvort herir þeirra séu tilbúnir til átaka og hvað eigi að gera ef Rússar gera árás. Hversu hratt muni Evrópuríkin bregðast við og munu þau yfirhöfuð bregðast við?
Í framhaldi af þessu hvatti hann Evrópuríki til að stofna evrópskt varnarbandalag.