fbpx
Þriðjudagur 18.febrúar 2025
Fréttir

„Dvölin í sólarparadís suðurlanda getur verið kærkomin eftir stranga starfsævi, en hún kemur ekki alltaf til af góðu“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 17. febrúar 2025 12:30

Mynd: Pexels.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Dvölin í sólarparadís suðurlanda getur verið kærkomin eftir stranga starfsævi, en hún kemur ekki alltaf til af góðu. Sumt eldra fólk flýr einfaldlega land og segja skilið við börn og barnabörn vegna þess að eftirlaunin duga ekki til sæmandi framfærslu. Og jafnvel þau sem eiga ágætan lífeyrissjóð þurfa að venjast breyttum högum þegar tekjur þeirra minnka umtalsvert.“

Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að í almennri umræðu sé ákveðin glansmynd dregin upp af eldra fólki 

„Það hafi komið sér vel fyrir í lífinu og að ekki þurfi að hafa áhyggjur af skuldastöðu þess og afkomu. Lífið gangi út að sinna barnabörnum eftir hentisemi á milli þess sem þau slá golfkúlur hér á landi eða erlendis og dvelja í sólarpardísum suðurlanda. En eins og gengur og gerist með glansmyndir, þá getur raunmyndin reynst önnur,“ segir Halla í grein sinni á Vísi.

Halla Gunnarsdóttir formaður VR

Segir Halla frá því að eftir að hún tók við embætti formanns VR hafi nokkur hópur eldra félagsfólks komið að máli við hana og lýst ýmsum áhyggjum sem varða þann hóp. Ljóst sé að þegar fólk nálgast eftirlaunaaldur fylgja því áhyggjur sem við sem yngri erum þekkjum ekki á eigin skinni. 

„Þar stendur afkomuótti upp úr. Fólk hikar við að skipta um starfsvettvang eftir sextugt, óttast að missa vinnuna og kvíðir tekjuskerðingu lífeyrisáranna. Í almennri umræðu er of lítið fjallað um hag og kjör þeirra sem eldri eru og umræðan er auk þess oft einsleit. En eldra fólk er fjölbreyttur hópur. Ekki einasta nær þessi merkimiði yfir langt æviskeið, eða allt frá sextugu og upp úr, heldur kemur eldra fólk úr ólíkum samfélagshópum og býr misvel hvað varðar tekjur, eignir og afkomu. Það er því augljóst að mismunandi og ólíkar áskoranir blasa við hópnum. Ein þeirra er húsnæðismál, en húsnæðismál eldri borgara eru sjaldan til umræðu, þótt ljóst sé að húsnæðisþarfir fólks breytist þegar aldurinn færist yfir.“

Landflótti eldra fólks staðreynd

Halla segir landflótta eldra fólks staðreynd eins og kemur fram í upphafi, sem komi ekki til af góðu þar sem eftirlaunin duga ekki til sæmandi framfærslu.

„Eldra fólk er nefnilega „alls konar“, vel stætt og illa stætt, áhugasamt um golf og áhugalaust um golf! Við vitum að margt eldra fólk, hvort sem það er enn á vinnumarkaði eða ekki, sinnir félagslegum þjónustustörfum, t.a.m. þegar kemur að umönnun barna og aldraðra foreldra. Ófullnægjandi velferðarþjónusta kemur niður á þessum hópi sem tekur á sig auknar byrðar og þar með geta stjórnvöld, ríki og sveitarfélög, lýst sig stikkfrí. Niðurskurður á grunnsviðum samfélagsins lendir því oftar en ekki af fullum þunga á þessum aldurshópi. Af þessu er einnig ljóst að áskoranir eins aldurshóps verða auðveldlega að viðfangsefnum annars.“

Halla bendir á að VR hefur haldið umræðu um hagsmuni eldra fólks á vinnumarkaði og lífeyrisþega á lofti og meðal annars staðið fyrir góðum námskeiðum fyrir félagsfólk sem er að nálgast starfslok. Innan VR starfi einnig sérstakt Öldungaráð sem beitir sér á ýmsan hátt í stefnumótun og hagsmunabaráttu félagsfólks sem er eldra en 60 ára. 

„Sem stærsta félag launafólks í landinu er eðlilegt að VR gegni ákveðnu forystuhlutverki í baráttu fyrir hagsmunum þeirra sem nálgast eða hafa náð eftirlaunaaldri.

Þegar kemur að því að gæta hagsmuna ólíkra kynslóða er mikilvægt að hafa í huga að ungt fólk og eldra fólk er ekki í eðli sínu ólíkt, heldur eru þetta við sjálf á mismunandi ævistigum. Það er því óþarft að líta á hagsmunagæslu fyrir einn hóp sem andstæða öðrum, heldur snýst þetta um að við höfum mismunandi þarfir á ólíkum æviskeiðum. Stefnumótun VR þarf að taka mið af því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Heimir Örn: Dæmi um að fjölskyldur þurfi að borga 700-800 þúsund á ári

Heimir Örn: Dæmi um að fjölskyldur þurfi að borga 700-800 þúsund á ári
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Mogginn svarar fyrir sig og sendir Heimi Má pillu: „Næsta víst að hann og Inga Sæ­land munu eiga góða daga sam­an“

Mogginn svarar fyrir sig og sendir Heimi Má pillu: „Næsta víst að hann og Inga Sæ­land munu eiga góða daga sam­an“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Útsendari Trump segir að Rússar verði að gefa landsvæði eftir

Útsendari Trump segir að Rússar verði að gefa landsvæði eftir
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segir vegatolla í raun margra milljarða styrk til Samskipa, Eimskips og rútufyrirtækja – „Fráleitt að allur almenningur sé að styrkja þessa aðila“

Segir vegatolla í raun margra milljarða styrk til Samskipa, Eimskips og rútufyrirtækja – „Fráleitt að allur almenningur sé að styrkja þessa aðila“
Fréttir
Í gær

Breyttu rusli í list!

Breyttu rusli í list!
Fréttir
Í gær

Heimir Már ómyrkur í máli: „Eiturpennar á Mogganum án alls siðgæðis“

Heimir Már ómyrkur í máli: „Eiturpennar á Mogganum án alls siðgæðis“
Fréttir
Í gær

Anders Fogh leggur til stofnun evrópsks Úkraínu-hers

Anders Fogh leggur til stofnun evrópsks Úkraínu-hers
Fréttir
Í gær

Ósátt við að ekki hafi verið fundað um málið – „Þetta er grafalvarlegt“

Ósátt við að ekki hafi verið fundað um málið – „Þetta er grafalvarlegt“