Trump gaf verkfræðisveitum hersins fyrirmæli um að opna fyrir streymið úr uppistöðulónunum þann 31. janúar. Þennan sama dag tilkynnti slökkviliðið í Los Angeles að tekist hefði að ná stjórn á gróðureldunum.
Trump sagði að vatnið myndi flæða til Los Angeles en fjöldi sérfræðinga, sem CNN ræddi við, sögðu að tvö stór vandamál væru tengd þessari ákvörðun Trump. Önnur er að vatnið fer til spillis því jarðvegurinn er blautur fyrir eftir frekar úrkomumikið tímabil en hin er að vatnið nær ekki að renna til Los Angeles.
„Það er nákvæmlega engin tenging á milli þess að opna fyrir uppistöðulónin og vatnsins sem þarf að nota til að takast á við gróðureldana í Los Angeles. Það er algjörlega útilokað að flytja vatnið frá staðnum þar sem það var, til Los Angeles,“ sagði loftslagssérfræðingurinn Peter Gleick í samtali við CBS News.
Ætlunin var að geyma vatnið þar til sumarhitar taka völdin. Þessi sóun á vatni mun því hafa áhrif á bændur á svæðinu. Gleick sagði að bændur telji þetta vatn vera „glatað“ eftir aðgerð Trump.
Trump skýrði frá ákvörðun sinni á Truth Social, samfélagsmiðlinum sem hann á, og sagði: „Vatnið streymir í Kaliforníu. Tómir árfarvegir eru nú fullir af fallegu, hreinu vatni sem er á leið til bænda í öllu ríkinu og til Los Angeles.“ Hann bætti einnig við að ef hann hefði fengið að gera þetta á fyrra kjörtímabili sínu „hefðu engir gróðureldar komið upp“.