„Afar lítil virkni hefur verið á þessum slóðum frá lokum síðasta eldgoss, en þó hafa af og til mælst örsmáir skjálftar. Meðfylgjandi mynd sýnir virknina síðustu vikuna. Stærstu skjálftarnir eru að mælast á bilinu 1-1,5 að stærð,” segir í færslunni og bent á að fjórir af þessum skjálftum hafi orðið í nótt.
Þá segir í færslunni að segja megi að þetta sé mesta virknin frá lokum síðasta eldgoss í byrjun desember.
„Slæmt veður síðustu daga hefur þó haft áhrif á næmni mælakerfisins og því má gera ráð fyrir að fleiri skjálftar hafi orði en þeir sem skráðir eru,” segir enn fremur.
Veðurstofan greindi frá því á dögunum að aflögunarmælingar sýni áframhaldandi landris og kvikusöfnun undir Svartsengi. Þann 31. janúar síðastliðinn var magn kviku undir Svartsengi komið að neðri mörkum þess rúmmáls sem talið er að þurfi til þess að koma af stað næsta kvikuhlaupi.
„Ef horft er til síðustu eldgosa sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni hafa þau byrjað allt frá þremur dögum upp í fjórar vikur eftir að neðri mörkum er náð. Þetta þýðir þó ekki að það sé öruggt að næsti atburður hefjist innan mánaðar, heldur sýnir reynslan að það sé líklegasta sviðsmyndin.