fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Fréttir

Mannréttindadómstóllinn tekur mál Gráa hersins gegn íslenska ríkinu til efnismeðferðar

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 6. janúar 2025 15:04

Mynd: lifdununa.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nóvember 2022 kvað Hæstiréttur upp dóm í málum Gráa hersins og þriggja ellilífeyristaka gegn íslenska ríkinu vegna skerðinga ellilífeyris almannatrygginga. Dómurinn féll ríkinu í vil, en dómurinn var strax kærður til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasbourg. Nú hefur dómstóllinn tilkynnt að hann hyggist taka tiltekna þætti kærunnar til efnismeðferðar, eins og kemur fram í tilkynningu frá LEB, Landsambandi eldri borgara.

Með dómnum hafnaði Hæstiréttur öllum röksemdum og kröfum Gráa hersins og þremenninganna á hendur ríkinu. Kærendur höfðu haldið því fram að tekjutenging ellilífeyris almannatrygginga með 45% – 56,9% skerðingarhlutföllum og mismunandi frítekjumörkum eftir uppruna tekna stangaðist á við meðalhófs- og jafnræðisreglur stjórnarskrár. Markmiðið var þó ekki að fá dæmdar fébætur til þessara þriggja einstaklinga, heldur var vonast eftir að niðurstaða dómstóla yrði með þeim hætti að ríkisvaldið kæmist í framhaldinu ekki hjá því að breyta regluverki almannatrygginga til þess að það samræmdist grundvallarreglum réttarríkisins.

Niðurstaða Hæstaréttar var samt sú að gefa ríkinu grænt ljós á gildandi skerðingaregluverk almannatrygginga, með þeirri röksemd að við setningu þess hafi löggjafinn ekki „farið út fyrir það svigrúm sem hann hefur í krafti fjárstjórnarvalds síns til að skipuleggja fyrirkomulag framfærsluaðstoðar (sic)…“

Ákvörðunin er áfangasigur

Þessa niðurstöðu kærði Grái herinn í febrúar 2023 til Mannréttindadómstólsins, sem nú hefur tilkynnt að hann muni taka kæruna til efnismeðferðar. Dómstóllinn mun afmarka umfjöllun sína við nánar tilgreind álitaefni, þ.e. hvort skerðingarreglurnar frá 2017/’18 hafi mismunað ellilífeyristökum eftir því hvort lífeyrisréttindi þeirra voru í séreignar- eða sameignarsjóðum; og/eða með því að ákvarða frítekjumark þeirra sem enn höfðu atvinnutekjur miklu hærra en þeirra sem eingöngu fengu greitt úr lífeyrissjóðum.

Enda þótt dómstóllinn hafi ákveðið að afmarka meðferð sína við þessi álitaefni, lítur Grái herinn á ákvörðunina sem áfangasigur í málinu. Einungis örlítill hluti þeirra mála sem MDE berast fær efnismeðferð fyrir dóminum. Það er því mikilvæg viðurkenning af hálfu MDE á réttmæti kæru Gráa hersins fólgin í því að dómurinn ætli að taka hana til efnismeðferðar.

MDE hefur nú veitt íslenska ríkinu frest til 11. mars til að leita sátta í málinu. Náist engin sátt fyrir þann tíma, fær ríkið 12 vikna frest til viðbótar til að skila greinargerð um málið. Í framhaldinu fær svo Grái herinn frest til að skila greinargerð af sinni hálfu.

Málinu er því langt í frá lokið og alls óvíst hvenær endanlegur dómur MDE fellur eða hver niðurstaðan verður. En áfanginn sem náðst hefur með þessari ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu er engu að síður mikið fagnaðarefni.

Kærendur í málunum þremur eru eftirtalin:

Wilhelm WG Wessman, kt.: 021042-7819
Ingibjörg Sverrisdóttir, kt.: 240347-2029
Sigríður  J Guðmundsdóttir, kt.: 191042-2989

Lögmennirnir Daniel Isebarn Ágústsson og Flóki Ásgeirsson hjá Magna lögmönnum hafa flutt mál þremenningana og fylgja því eftir til Strasbourg.

Málsóknarsjóður Gráa hersins er fjárhagslegur bakhjarl málarekstrarins og var stofnaður til þess. Fjárframlög til sjóðsins hafa komið frá einstaklingum, félögum og samtökum aldraðra auk stéttarfélaga.

Dómur Hæstaréttar í máli Ingibjargar (sýnishorn af dómunum þremur).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sara furðar sig á því að leikskólar haldi upp á bóndadaginn – „Komið út í svo mikið bull”

Sara furðar sig á því að leikskólar haldi upp á bóndadaginn – „Komið út í svo mikið bull”
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Ekkert lát á hreinsunum hjá Sýn – Nú er Steinn Kári farinn

Ekkert lát á hreinsunum hjá Sýn – Nú er Steinn Kári farinn
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Trump náðar Ross Ulbricht – Fékk lífstíðardóm árið 2015

Trump náðar Ross Ulbricht – Fékk lífstíðardóm árið 2015
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Búseti kærir borgina: Bygg­ing­ar­leyfi gefið út löngu áður en sérupp­drætt­ir voru lagðir fram

Búseti kærir borgina: Bygg­ing­ar­leyfi gefið út löngu áður en sérupp­drætt­ir voru lagðir fram
Fréttir
Í gær

Gróf pólitísk ritskoðun vekur reiði og vangaveltur um endalok tjáningarfrelsisins – „Eitthvað hræðilegt átti sér stað á meðan við vorum í burtu“

Gróf pólitísk ritskoðun vekur reiði og vangaveltur um endalok tjáningarfrelsisins – „Eitthvað hræðilegt átti sér stað á meðan við vorum í burtu“
Fréttir
Í gær

Guðmundur segir að ósanngjörn umfjöllun RÚV um Trump geti skaðað samskipti við Bandaríkjamenn – „Þessu verður að linna“

Guðmundur segir að ósanngjörn umfjöllun RÚV um Trump geti skaðað samskipti við Bandaríkjamenn – „Þessu verður að linna“