Ann Telnaes, skopmyndateiknari bandaríska dagblaðsins Washington Post, hefur sagt starf sínu lausu eftir að blaðið neitaði að birta mynd sem gagnrýndi eigandann Jeff Bezos.
Breska blaðið The Guardian greinir frá þessu.
Telnaes, sem er sænsk að uppruna og og hlaut meðal annars Pulitzer verðlaun árið 2001, sagði starfi sínu lausu í gær, 3. janúar. Ástæðan er neitun blaðsins um að birta skopmynd hennar.
Á myndinni sjást nokkrir eigendur fjölmiðla og tæknifyrirtækja krjúpa á kné fyrir Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseta, og afhenda honum sekki af peningum. Einn þeirra er augljóslega milljarðamæringurinn Jeff Bezos, sem keypti Washington Post árið 2013.
„Ég hef átt uppbyggileg ritstjórnarleg samtöl um skopmyndirnar mínar, og átt skoðanaskipti um þær en aldrei fyrr hefur mynd frá mér verið bönnuð vegna þess hverjum ég beindi penna mínum að,“ sagði Telnaes í yfirlýsingu þar sem hún skýrði afsögn sína.
David Shipley, ritstjóri skoðanagreina hjá Washington Post, hefur varið ákvörðunina um að birta ekki skopmyndina. Sagði hann að ástæðan hafi verið sú að verið væri að fjalla um sama hlut í annarri aðsendri grein. Það hefði verið endurtekning að birta skopmyndina. Sagðist hann hafa beðið Telnaes um að endurskoða afsögn sína.