Hertogaynjan Meghan Markle hóf nýja árið á því að kynna til leiks nýja Instagram-síðu þar sem hún hyggst setja inn fréttir og ýmis tíðindi úr lífi sínu. Fyrsta myndbandið var hugljúft myndband af henni hlaupandi um á strönd við heimili hennar og Harry prins í Kaliforníu-ríki sem tekið var upp af hinum konungsborna.
Meghan hélt úti vinsælli Instagram-síðu sem og lífstílsbloggi áður en hún giftist Harry en lokaði þeim báðum eftir að hún gekk í hnapphelduna. Meghan hefur hins vegar hrunið í vinsældum hin síðari ár og fátt gengið upp hjá henni og segja sérfræðingar að hin nýja Instagram-síða sé augljóslega örvæntingafull tilraun hertogaynjunnar til að stýra betur umfjölluninni um hana og Harry og reyna að laga laskaða ímyndina.
Hvernig tekst til verður að koma í ljós en fyrsta myndbandið þykir þó yfirborðslegt og ekki gera mikið fyrir leikkonuna fyrrverandi.
View this post on Instagram