fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Vissi ekkert hvað hann var að gera þegar hann olli skelfilegu umferðarslysi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 31. janúar 2025 14:30

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út eftir slysið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann til að greiða 410 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs eftir að hann varð valdur að skelfilegu umferðarslysi á Snæfellsnesvegi við Brúarland í Borgarbyggð í september 2022. Þá var hann dæmdur til að greiða konu sem slasaðist alvarlega þrjár milljónir í miskabætur.

Maðurinn var ákærður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna þegar slysið varð, en í blóði hans mældist THC og alprazólam sem er slævandi lyf.

Lífinu rústað

Ók maðurinn yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hann ók framan á bíl sem kom á móti. Hlaut ökumaður hennar, kona, mörg brot á vinstri fótlegg, mörg brot á  vinstri lærlegg, brot sem náðu til margra svæða á vinstri ganglim, úlnliðsbrot vinstra megin, marga yfirborðsáverka  á  vinstri  mjöðm  og  læri,  tognun  á  lendhrygg  og  mjaðmagrind,  mar  á vinstri  fæti  og  lungnablóðrek.

Býr konan við varanlega örorku eftir slysið og það hafi valdið því að hún getur ekki unnið við það sem hún menntaði sig í. Vegna verkja sé takmarkað hvað hún getur gert yfir daginn og þurfi að leggja sig yfir daginn til að hafa úthald. Nefndi hún fyrir dómi að lífi hennar hefði verið rústað.

Farþegi í bifreið konunnar slasaðist einnig og hlaut hann roða og þrota yfir brjóstkassa ofarlega, bólgu við vinstri ökklalið og lítið afrifubrot í vinstri ökkla.

Um var að ræða mjög alvarlegt slys og var þyrla Landhelgisgæslunnar meðal annars kölluð á vettvang. Maðurinn sem var ákærður slasaðist einnig mikið og var með alvarlega fjöláverka þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang.

Alvarlegar geðsveiflur

Við aðalmeðferð málsins neitaði maðurinn sök á grundvelli þess að hann hefði verið ósakhæfur þegar slysið varð. Gekkst hann þó við atvikalýsingu að öllu leyti.

Fyrr þennan dag sem slysið varð höfðu lögreglu borist upplýsingar þar sem fram kom að bifreiðinni hefði verið ekið með óstöðugu aksturslagi og hún farið yfir á rangan vegarhelming. Auk þess var tilkynnt að bifreið af sömu gerð hefðu nánast þvingað annan ökumann út af veginum skömmu fyrir slysið.

Geðlæknir gaf skýrslu fyrir dómi þar sem fram kom að maðurinn, ákærði, ætti sér mjög flókna sögu frá því hann var kornungur maður um verulega misnotkun vímuefna. Hann hefði fengið alvarlegar geðsveiflur með örlyndi og svæsnum þunglyndislotum sem væru illvígar og trufluðu hann mikið. Hann hefði verið þekktur fyrir ábyrgðarlausa hegðun í örlyndissveiflum og lögregla áður haft áhyggjur af ökufærni því tengdu. Í aðdraganda slyssins hafi hann verið mjög ör og sveiflóttur í lund og gríðarleg óreiða verið til dæmis á svefni hans.

Mat læknirinn það svo varðandi slysið að hann hefði nánast enga stjórn haft á skapi sínu og segja megi að hann hafi ekkert vitað hvað hann var að gera.

Á þessum grundvelli var maðurinn sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins en gert að greiða konunni þrjár milljónir króna í miskabætur og máls- og sakarkostnað upp á samtals um 2,6 milljónir króna. Þá var hann sviptur ökuréttindum í 27 mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Í gær

Segir að Inga Sæland þurfi að passa sig: „Derringur er sjaldnast af hinu góða“

Segir að Inga Sæland þurfi að passa sig: „Derringur er sjaldnast af hinu góða“
Fréttir
Í gær

Ætla ekki að gera úrbætur á hættulegu hringtorgi þar sem keyrt var á átta ára dreng

Ætla ekki að gera úrbætur á hættulegu hringtorgi þar sem keyrt var á átta ára dreng