fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Reyndi að koma sér undan því að gera að fullu upp við fyrrverandi eiginkonu sína

Ritstjórn DV
Föstudaginn 31. janúar 2025 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona stefndi fyrrverandi eiginmanni sínum fyrir dóm eftir að hann efndi ekki skilmála skilnaðarsamnings. Manninum bar að greiða henni 12,5 milljónir við skilnað en borgaði henni aðeins rétt rúmlega helminginn. Maðurinn reyndi að víkja sér undan greiðslu með því að tína til ýmsan kostnað sem hann sagðist hafa greitt fyrir hönd konunnar. Dómari lét þó ekki platast og gerði manninum að standa skil á sínu. Dómur var kveðinn upp í málinu þann 24. janúar í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Fram kemur í dóminum að hjónin voru gift í rúmlega 20 ár. Við skilnað áttu þau nokkuð af eignum, þar með talið 55% hlut í íbúð að verðmæti 32.560.000 krónur, bifreið, bifhjól, innbú og svo fyrirtæki. Skuldir búsins voru áhvílandi lán á íbúðinni. Þau sömdu um að maðurinn fengi íbúðina og tæki þá á sig áhvílandi veðskuldir. Hann fengi auk þess bifhjólið. Konan fengi bílinn og maðurinn myndi greiða henni 12,5 milljónir og fyrirtækinu yrði svo skipt milli beggja.

Konan flutti út úr íbúðinni. Áður en gengið var frá skilnaðarsamningi höfðu hjónin gert kauptilboð í raðhús sem var í byggingu. Þau höfðu greitt 2,2 milljónir inn í kaupsamning. Við skilnað ákvað konan að taka yfir kaupin. 12,5 milljónirnar sem maðurinn átti að greiða konunni áttu að renna til seljanda eignarinnar. Maðurinn stóð þó ekki við sitt og fór svo að kaupsamningi var rift. Þá var búið að greiða alls 9 milljónir inn í kaupin sem konan fékk þarna endurgreitt.

Konan rakti að 12,5 milljónirnar áttu að greiðast fyrir 1. nóvember 2020. Á þeim degi hafði maðurinn átt 6,3 milljónir ógreiddar. Hann hafi svo eftir það greitt henni annars vegar 200 þúsund krónur og svo 200 þúsund en ekkert eftir 9. mars 2021.

Maðurinn hélt því aftur á móti fram að hann hefði efnt sitt að fullu og gott betur. Hún hafi fengið 9 milljónir endurgreiddar þegar kaupsamningi var rift, en sá peningur hafi í raun verið frá honum. Eins hafi hann greitt um 1,3 milljónir í ýmsan kostnað vegna sumarhúss fyrirtækis þeirra sem konan hafði fengið í sinn hlut. Konan hafi svo selt sumarhúsið og við það myndast söluhagnaður hjá fyrirtækinu. Maðurinn hafi því borið ábyrgð á tekjuskatti vegna kaupanna, tæpum 5 milljónum. Þar með hefði hann í raun greitt konunni rúmar 15 milljónir sem sé töluvert meira en um var samið. Hann skuldaði henni því ekkert.

Hann benti eins á að hann hafi seinast lagt inn á fyrrverandi konu sína snemma árs 2021 og hún enga athugasemd gert fyrr en haustið 2023. Krafa hennar, væri hún yfir höfuð til staðar, væri því fallin niður fyrir tómlæti. Eins tók hann fram að ef honum yrði gert að greiða konunni meira þá væri ljóst að hún væri að fá meira í sinn hlut við skilnaðinn en henni bar samkvæmt helmingaskiptareglunni. Fjárhagslegri jafnstöðu við fjárskipti yrði raskað og konan að auðgast með óréttmætum hætti á hans kostnað.

Dómari benti á að það væri óumdeilt að maðurinn skuldbatt sig til að greiða konunni 12,5 milljónir. Hvað greiðslur vegna fasteignarinnar varði hafi 2,2 milljónir verið greiddar inn á kaupin áður en skilnaðarsamningurinn var gerður. Þar með geti sú fjárhæð ekki talist hluti af þessum 12,5 milljónum. Dómari benti á að það var maðurinn sjálfur sem stýrði ferðinni við skilnaðinn. Hann mat virði eigna búsins og ákvað skiptingu þeirra. Eins hafi hann engin gögn lagt fram sem sönnuðu að hann hafi greitt ýmsan kostnað vegna sumarhússins eða um 5 milljónir í tekjuskatt. Þvert á móti hafi hann selt sína eigin fasteign til fyrirtækis síns til að koma sér undan skattgreiðslunni. Þar með væru fullyrðingar hans ósannaðar og hann þarf því að gera upp við fyrrverandi konu sína og það með dráttarvöxtum. Eins þarf hann að greiða henni 1 milljón í málskostnað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu myndir og myndband frá björgunarstörfum á Reykjanesbraut og Suðurstrandarvegi

Sjáðu myndir og myndband frá björgunarstörfum á Reykjanesbraut og Suðurstrandarvegi
Fréttir
Í gær

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“
Fréttir
Í gær

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“
Fréttir
Í gær

Sýndi skilaboð frá eiginkonu sinni sem hún sendi skömmu áður en vélin brotlenti

Sýndi skilaboð frá eiginkonu sinni sem hún sendi skömmu áður en vélin brotlenti
Fréttir
Í gær

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum
Fréttir
Í gær

Segir ótrúlegt að fólk sé enn tilbúið að verja framkomu Brynjars Karls – „Ég get allavega ekki þagað lengur“

Segir ótrúlegt að fólk sé enn tilbúið að verja framkomu Brynjars Karls – „Ég get allavega ekki þagað lengur“
Fréttir
Í gær

Faðir stúlku sem Hörður Ellert braut gegn ósáttur við kerfið – „Þetta eru sálarmorð sem eyðileggja einstaklinginn fyrir lífstíð“

Faðir stúlku sem Hörður Ellert braut gegn ósáttur við kerfið – „Þetta eru sálarmorð sem eyðileggja einstaklinginn fyrir lífstíð“