Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá því að óvissustigi hafi verið lýst yfir á suðvestanverðum Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Óveður gengur yfir landið alla helgina.
Í tilkynningu á samfélagsmiðlum bendir lögreglan á að Veðurstofa Íslands hafi gefið út veðurviðvaranir, gular og appelsínugular að lit, vegna óveðursins. Veðrinu fylgir mikið hvassviðri, hlýindi og úrkoma í formi rigningar, bæði næstu klukkustundirnar og dagana.
„Í slíku veðri getur skapast hætta á krapaflóðum og/eða snjóflóðum. Þessi hætta virðist vera meiri á Sunnanverðum Vestfjörðum en einnig yfir vegum sem liggja í bröttum hlíðum, eins og Raknadalshlíð, Súðavíkur og Kirkjubólshlíð,“ segir í tilkynningunni.
Eru íbúar og vegfarendur hvattir til þess að vera undir það búnir að grípa þurfi til ráðstafana. Meðal annars lokun vega eða jafn vel rýmingar. Mun það skýrast betur þegar líður á daginn.
Varðskipið Þór siglir til Vestfjarða til að aðstoða fólk þar ef á þarf að halda. En varðskipið hefur áður séð byggðarlögum fyrir rafmagni ef á þarf að halda.