fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fréttir

Þorsteinn Skúli býður sig fram til formanns VR

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 30. janúar 2025 10:10

Þorsteinn Skúli Sveinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns VR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Skúli Sveinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns VR. 

Þorsteinn Skúli er 38 ára Hafnfirðingur og býr með eiginkonu sinni og þremur börnum í Hafnarfirði. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 en árið 2019 sótti hann sér viðbótarnám í mannauðsstjórnun frá sama skóla. Þorsteinn starfaði hjá VR frá 2007 til 2021 og lengst af sem sérfræðingur á kjaramálasviði. Eftrir 14 ár hjá VR réð hann sig til starfa sem lögfræðingur hjá Sameyki stéttarfélagi. Þaðan lá leið hans til Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Í dag starfar Þorsteinn Skúli á mannauðs- og stefnusviði BYKO, eins og segir í tilkynningu. 

,,Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í embætti formanns VR í formanns- og stjórnarkosningum sem fram fara innan félagsins í mars næstkomandi. Ég vil endurvekja rödd félagsfólks og vinna markvisst að bættum kjörum og jöfnuði. Sjálfur er ég vel kunnugur starfsemi VR þar sem ég átti fjórtán farsæl starfsár hjá félaginu og starfaði þar af lengst sem sérfræðingur á kjaramálasviði. Ásamt því hef ég starfað sem lögfræðingur hjá Sameyki, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og í dag á mannauðs- og stefnusviði BYKO. Þessi reynsla hefur gefið mér góða innsýn í að sitja beggja vegna borðsins og dýrmætan skilning á þörfum félagsfólks,“ segir Þorsteinn Skúli.

Þorsteinn Skúli Sveinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns VR.

,,Sem formaður VR mun ég leggja áherslu á jöfnuð og bætt kjör fyrir öll. Ég vil skapa VR sem sameinar ólíkar raddir og tryggja það að félagsfólk á öllum aldri finni fyrir því að starfað sé í þeirra þágu. Ég mun fylgja eftir mikilvægum málum sem fyrrum formenn og öflugt starfsfólk félagsins hefur unnið að á síðustu árum. Má þar m.a. nefna uppbyggingu húsnæðis fyrir félagsfólk VR (Blævar), kjör hinna lægst launuðu, starfsmenntamál og mikilvægi þess að jafnrétti sé gætt í hvívetna hjá hinu almenna félagsfólki. 

Ég tel það grundvallaratriði að formaður VR sé óháður pólitík og einbeiti sér alfarið að málefnum félagsfólks. Þannig tryggjum við opið og gagnsætt samtal við stjórnvöld, óháð því hvaða flokkar eru við völd og megum við aldrei láta pólitískar skoðanir skyggja á hagsmuni félagsfólks. Það er mér hjartans mál að skapa sanngjarna og sterka framtíð fyrir félagsfólk og mun ég leggja mig allan fram í þetta mikilvæga hlutverk.“

Helstu áherslumál Þorsteins Skúla eru eftirfarandi:

  • Að setja á stofn leikskóla fyrir börn félagsfólks VR á aldrinum 12-24 mánaða.
  • Að jafna rétt félagsfólks með því að varasjóður verði lagður niður í þeirri mynd sem hann er í dag og teknir upp fastir styrkir.
  • Að þungaðar félagskonur fái auka 4 vikur við hefðbundinn veikindarétt á launum. 
  • Að félagsfólk geti ráðstafað launuðu leyfi vegna veikinda barna hvort heldur sé vegna veikinda barna/maka/foreldra.
  • Að unnið sé áfram í jöfnun réttinda milli hins almenna og opinbera vinnumarkaðs, til að mynda með 36 stunda vinnuviku og 30 daga orlofi fyrir allt félagsfólk.
  • Að eiga stöðugt samtal við stjórnvöld og samningsaðila vegna bættra kjara félagsfólks.

www.thorsteinnskuli.is 

Facebook

Instagram

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

„Í morgun varð mannbjörg“

„Í morgun varð mannbjörg“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hatrammar ofsóknir bróður enduðu með ósköpum eftir falskar ásakanir um barnaníð

Hatrammar ofsóknir bróður enduðu með ósköpum eftir falskar ásakanir um barnaníð
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Flugslys í Bandaríkjunum í nótt: Óttast að tugir hafi farist þegar farþegaflugvél lenti í árekstri við herþyrlu

Flugslys í Bandaríkjunum í nótt: Óttast að tugir hafi farist þegar farþegaflugvél lenti í árekstri við herþyrlu
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Sérfræðingur slær drauma Trump út af borðinu

Sérfræðingur slær drauma Trump út af borðinu