Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, fjallar um góða geðheilsu og í hverju hún felst. Hún útskýrir málið í nýjum pistli á Facebook, en pistlar hennar um heilsu á mannamáli hafa notið mikilla vinsælda um árabil.
„Góð geðheilsa er ekki endilega að vera í dúndrandi stuði alla daga eins og miðaldra húsmóðir á sjöunda rauðvínsglasi á Pallaballi.
Geðheilsa er að vera ánægð með lífið, sátt við okkur sjálf, upplifa jafnvægi og finna til öryggis og hafa getu og færni til að aðlagast breyttum aðstæðum.“
Ragga segir að til að geðheilsan okkar blómstri eins og rósarunni í júní þurfum við að huga vel að því að vökva jarðveginn og næra ræturnar.
Ræturnar okkar eru:
▶️ Lúllingurinn er sökkullinn undir húsinu. Ef svefninn er úti á túni þá fúnkerar ekkert í maskínunni. Góður nætursvefn í 8-9 tíma lækkar kortisól á núlleinni. Svefn býr til nýjan vef, ekki bara í vöðvum, heldur líka í heilanum. Svefn eykur mólekúlið BDNF (Brain derived neurotropic factor) sem stuðlar að minni og námi, en því hærra BDNF því minni líkur á Alzheimer.
▶️ Það rúllar sér enginn í lími og glimmeri alla daga valhoppandi í hörfötum á grænu engi. Við eigum öll ömurlega daga þar sem við erum grjótpirruð og langar mest að reka löngutöng framan í allt og alla. Ekki sópa þeim tilfinningum undir teppi. Leyfðu þeim að sigla um kerfið, rétt eins og gleðinni.
▶️ Tími fyrir okkur sjálf í sjálfsrækt. Ef þú setur þig ekki í forgang þá safnast upp gremja og pirringur sem finnur sér alltaf farveg, yfirleitt í framkomu og samskiptum.
▶️ Göngutúrar, sérstaklega í náttúrunni, hækka serótónín og lækka hjá okkur kvíða og kortisól. Hliðarhreyfingar augna þegar við löbbum virkja stöð í framheila sem sér um lausnamiðaða hugsun, athygli, minni og nám. Við getum ekki verið stressuð á sama tíma og við erum að veita athygli.
▶️ Að setja mörk og segja NEI þegar við höfum ekki orku, tíma eða athygli til að taka á okkur fleiri byrðar er einn stærsti þátturinn í að koma í veg fyrir að við keyrum lóðrétt út í skurð í algjöra örmögnun.
▶️ Heiðra þörf líkamans fyrir hreyfingu og hrista skankana reglulega. Hreyfing losar út endorfín sem er vellíðunarhormónið. Rannsóknir sýna að þolæfingar bæta minnið hjá eldra fólki og styrktaræfingar losa hormónið Irisin sem minnkar kvíða…. allavega hjá mýslunum.
▶️ Borða holla og næringarríka fæðu í gómsætum útgáfum til að stuðla að langtíma heldni, tilhlökkun fyrir máltíðir og losun á dópamíni þegar við borðum. Trefjar halda öllu reglulegu í pípulögninni, og fjölmargar rannsóknir sýna tengsl milli góðrar geðheilsu og heilbrigðrar þarmaflóru.
▶️ Finna út hvaða gildi við höfum á hinum ýmsu sviðum og láta þau vera áttavitann okkar um hvernig við komum fram og hegðum okkur. Hvernig maki viltu vera? Hvernig starfsmaður? Hvernig foreldri?
▶️ L-theanine er amínósýra sem er virka efnið í grænu tei og stuðlar að slökun með því að lækka streitu og kvíða. L-theanine bætir svefngæðin því taugakerfið verður mega chillað eins og unglingarnir segja, en er samt ekki róandi lyf svo þú verður ekki eins og uppvakningur. 100-200 mg á dag er nóg til að verða sultuslök (Examine.com).
▶️ Þegar við erum djúpt sokkin í að gera eitthvað sem okkur þykir skemmtilegt þá gleymum við oft áhyggjum okkar á meðan. Skemmtun og leikur losar líka dópamín og serótónín. Skelltu þér í vatnsrennibrautina með krökkunum, rólaðu, málaðu myndir, tálgaðu spýtu, farðu á línuskauta… gerðu eitthvað sem gleður pinnann þinn.
Ef þú passar upp á að haka reglulega við grunnstoðirnar þá mun geðheilsan þakka þér með að vera í glimrandi góðu standi.“