Hatrammar deilur bræðra enduðu með ósköpum eftir að annar sakaði hinn um hrottaleg brot að ósekju. Sá hefur nú verið sakfelldur fyrir rangar sakargiftir og gert að sæta 9 mánaða skilorðsbundinni refsingu auk þess sem hann þarf að greiða fimm aðilum miskabætur.
Sjá einnig: Martröð föður: Var að ósekju sakaður um að nauðga dætrum sínum og deila myndefni af því á netinu
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 27. janúar en atvik máls áttu sér stað í febrúar árið 2020. Þann 8. febrúar það ár barst Neyðarlínunni símtal. Þar sagði að brotaþoli í málinu væri að misnota tvær barnungar dætur sínar og hann hefði auk þess deilt myndefni af brotunum á netinu. Barnavernd barst eins tilkynning þar sem mátti finna hrottalegar lýsingar á meintum brotum, kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi, sem brotaþoli átti að hafa beitt dætur sínar í félagi við fjóra aðra karlmenn.
Málinu var tekið alvarlega og lögregla send að heimili brotaþola þar sem hann var handtekinn og fékk að dúsa heila nótt í fangageymslu. Eins fór fram húsleit á heimili hans og honum greint frá því að hann væri sakborningur í rannsókn á meintum brotum sínum gegn eigin börnum.
Brotaþola grunaði strax að bróðir hans, ákærði, bæri ábyrgð á þessum fölsku ásökunum. Greindi hann lögreglu strax frá því. Fyrir dómi voru eins leidd fram vitni, annars vegar fyrrverandi eiginkona brotaþola og hins vegar þáverandi sambýliskona hans. Báðar grunaði strax að ákærði bæri ábyrgð á málinu en hann hefði ofsótt brotaþola og fjölskylduna árum saman. Höfðu báðar lokað á öll samskipti við ákærða.
Brotaþoli taldi að bróðir hans væri knúinn áfram af annaðhvort andlegum veikindum eða illvilja. Þeir hefðu varla talast við í hátt í áratug. Hann sagði bróður sinn hata sig og stunda ítrekað baktal, ofsóknir og áreiti.
Þann 4. júní kærði brotaþoli bróður sinn fyrir rangar sakargiftir. Rannsókninni á meintum kynferðisbrotum lauk í nóvember 2020, en lögregla hafði þá rætt við fjölda vitna og fann engan fót fyrir ásökunum.
Þá var komið að því að rannsaka ákærða. Lögregla komst að því að tilkynningarnar bárust úr norsku símanúmeri, en ákærði var búsettur í Noregi. Hann neitaði þó sök heldur sagði að téðan dag hefði ókunnugur maður komið til hans. Sá var símalaus og vantaði pening. Taldi ákærði að þessi maður þekkti bróður hans, brotaþola í málinu. Líklega hafi þessi ókunnugi vitað um ákærða á svæðinu og þótt spennandi að hitta Íslending á erlendri grundu. Hann hafi lánað þessum manni síma sinn í um korter. Ákærði tók sérstaklega fram að þessi maður hafi verið hálfræfilslegur og illa til fara.
Upptaka frá Neyðarlínunni var spiluð í dómsal. Þar kannaðist ákærði ekki við rödd sína. Dómari, lögregla og brotaþoli töldu þó ljóst að ákærði væri karlmannsröddin á upptökunni. Dómari taldi skýringar ákærða auk þess galnar.
„Að mati dómsins er þessi frásögn ákærða frá öllum bæjardyrum séð fjarstæðukennd og með miklum ólíkindablæ. Hefur ákærði ekki fært fram neina rökrétta skýringu sem stutt getur frásögn hans. “
Því þyrfti að hafa með öllu framhjá framburði ákærða. Dómari horfði til þess að fjögur ár væru liðin frá því að atvik máls gerðust, en þó var málið upplýst fljótlega eftir að það var kært. Tafir megi að hluta rekja til veikinda ákærða en eins til dráttar á rannsókn og dómsmeðferð málsins. Því væri rétt að dæma ákærða í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Hann þarf þó að greiða þeim bætur sem báru skaða af málinu. Hann þarf að greiða bróður sínum 800 þúsund, 150 þúsund til bróðurdætra sinna, 200 þúsund til fyrrum stjúpdóttur bróður síns og 150 þús til fyrrverandi sambýliskonu bróðurins.