Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs Aþenu í körfubolta, er allt annað en sáttur við fréttamiðilinn Vísi og íþróttablaðamanninn Ágúst Orra Arnarson. Segir Brynjar Karl að orð hafi verið lögð honum í munn í umdeildu viðtali sem miðillinn birti textaútgáfu af og skorar á Vísi að birta viðtalið í heild sinni svo sannleikurinn komi í ljós.
Viðtalið umdeilda var birt á Vísi fyrir tveimur dögum undir fyrirsögninni „Fokking aumingjar“ þar sem Brynjar Karl fór mikinn sem endranær. Kom meðal annars fram í viðtalinu að Brynjar Karl og Ágúst Orri hefðu rökrætt málin ítarlega eftir að viðtalinu lauk.
Óhætt er að segja að útgáfan af viðtalinu sem Vísir birti hafi fallið í grýttan jarðveg og steig meðal annars Bjarney Lára Bjarnadóttir, íþróttafræðingur og framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar, og sagði hegðun Brynjar Karls gagnvart leikmönnum sínum óverjandi, líkt og hún hefur áður bent á.
Brynjar Karl brást við nú fyrir stundu með ítarlegri Facebook-færslu þar sem hann fór yfir málið frá sinni hlið. „Fake news. Þá er það opinbert, við erum að tala um algjört siðrof hjá íþróttadeild visir.is,“ segir Brynjar Karl í færslunni þar sem hann segir áðurnefnda frétt vera „áróðursgrein“ gegn sér.
Kveðst hann ætla á fund ritstjóra miðilsins á morgun og krefjast þar að miðillinn geri hreint fyrir sínum dyrum. Hann fer síðan nánar yfir meintan útúrsnúning íþróttafréttamannsins.
„Ágúst Orri skrifar í grein sinni: „Hann segir sínar konur aumingja.“ Það er algjör útúrsnúningur. Ég sagði í raun: „Við virðumst einhvern veginn alltaf finna leið til þess að verða fucking aumingjar.” Orðið „við“ var lykilatriði – ekki „hann“ eða „hans konur“. Ágúst bætir svo við: „Sjálfur ber hann af sér alla sök á taphrinunni og telur enga þörf á breytingum í sinni nálgun.“ Það er fáránlegt að ásaka mig um að telja að ég eigi enga sök á gangi liðsins. Ágúst spyr mig: „Hvað þarf að breytast, hvað þarf að gera? Er það bara karakterinn? Er það ekkert í spilamennskunni, leikskipulagi eða eitthvað svoleiðis?” — þá játa ég strax að jú jú, auðvitað. Það er „vélin á bakvið þetta“.
Hvar kemur svo fram í viðtalinu að ég telji enga þörf breytingu á minni nálgun? Ég segi skýrt að þetta skrifist á leikfræði sem auðvitað enginn annar en ég ber ábyrgð á en hann snýr út úr því og afbakar það sem ég sagði með því að segja mig hafa talað um leikflæði sem snýr þá að leikmönnum mínum. Þetta er alrangt,“ skrifar Brynjar Karl.
Í kjölfarið hafi síðan birst frétt með áðurnefndri fyrirsögn og mynd af Brynjari í ham.
„Þegar greinin um mig varð mest lesna fréttin birti Vísir aðra grein. Þar var gripið í einhverja Facebook-færslu frá konu úti í sveit — Bjarney Láru Bjarnadóttur — sem aldrei hefur hitt mig eða okkur, virðist illa „triggeruð“ af einhverjum ástæðum og sakar mig (og þar með félagið Aþenu), ásamt Facebook-vinum sínum, um ofbeldisglæpi. Það er ekki flókið að hafa samband við mínar stelpur mæta á æfingu bara hafa eitthvað fyrir sér annað en áróður áður en maður fer sjálfur í netníð og mannvonsku,“ skrifar þjálfarinn.
Hann segist svo hafa sest niður til að horfa á viðtalið í körfuboltakvöldi á Stöð 2, þar sem hið sanna kæmi í ljós að hans mati, en þá hafi hann rekið sig á það að búið var að klippa viðtalið stutt og áðurnefndir punktar ekki skilað sér.
„ Hvað býr eiginlega að baki þessari áróðursgrein Ágústs Orra? Getur verið að nú ætli íþróttaáróðursmeistararnir á visir.is að „double down“ á mig af því að ég gagrýndi eineltið í minn garð í síðustu tveimur facebook pistlum, vanþekkinguna, fáfræðina og meðvirknina sem blossar upp hjá mörgum þeirra sem standa að íþróttafréttaflutningi miðilsins? Það er ótrúlegt að bjóða mér aftur og aftur í sjónvarpsviðtal, sýna svo ekki viðtalið sjálft en skálda svo áróðursgrein á netmiðli gegn mér, henda inn enn einni “grýlumynd” af mér, og æsa upp allt haturspakkið og góða fólkið sem elskar góðan rógburð — fólk sem ég hef ekki gert neitt annað en að vera gorgeous.
Svo er líka vel þekkt leið fyrir vesalinga að sparka í liggjandi menn og taka þannig þátt í eineltinu fyrir framan eineltis-vini sína, til þess að vera „teknir í hópinn“. Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti? Ég mun aldrei samþykkja það.
Allir sjá sem vilja að visir.is hyggst halda við ímyndina um „umdeildasta þjálfara landsins“, sem þeir voru fyrstir til að búa til fyrir „clickbait“. Þar er ég málaður sem alls kyns illmenni með mikilmennskubrjálæði og fleira. En þegar ég skrifa Facebook-pósta til að gagnrýna visir.is, þá er þögnin ærandi—radio silence. Íþróttadeild visir.is er alvöru spilt áróðurs vél sem hefur enga sómakennd. Það orkar tvímælis að ég er alltaf mest lesna fréttin en þegar ég býð Stöð 2 að koma í alvöru umræður og viðtal við mína fjandmenn þá hrökklast menn undan á augabragði. Ég ætla að bjóða miðlinum en og aftur að bjóða mér í gott viðtal. Finnst ykkur líklegt að þeir þiggji það? Í raun finnst mér það segja allt sem segja þarf um stöðuna,“ skrifar Brynjar Karl.
Hann skorar ennfremur á Vísi að birta viðtalið við sig í fullri lengd og þannig muni heiftin í hans garð koma í ljós.
„Svo hefði fólk líka haft gott af því að heyra rökræðurnar sem ég og dóttir mín áttum við Ágúst Orra eftir viðtalið. Þar titraði maðurinn. Kannski var það erfitt fyrir Ágúst Orra, sem vildi endilega rökræða við mig um þjálfun, og lýsa þeirri persónulegu skoðun sinni að honum þætti þjálfunarstíll minn ekki við hæfi. Sjálfur viðurkenndi hann þó að hafa varla spilað íþróttir og ætti því lítið erindi inn í þá umræðu. Hann varð allavega mjög lítill í sér og hugsaði mér þegjandi þörfina þegar hann skrifaði sína grein.“