Meirihlutinn í Reykjavíkurborg felldi tillögu Sjálfstæðismanna um breytt fyrirkomulag á gatnamótum Úlfarsbrautar og Urðarbrunns í Úlfarsárdal. Gatnamótin eru sögð valda misskilningi ökumanna og í október var þar keyrt á ungan dreng.
Tillaga Sjálfstæðismanna um úrbætur á gatnamótunum var felld í gær á fundi umhverfis- og skipulagsráðs. En hún var lögð fram um miðjan október, um tveimur vikum eftir slysið.
Þann 3. október var keyrt á átta ára dreng sem var á leiðinni í skólann, Dalskóla, á hlaupahjóli. Hann var á leið yfir götuna þegar keyrt var á hann. Blessunarlega voru meiðsli hans ekki talin alvarleg, en hann slasaðist á fæti og var sóttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á sjúkrahúsi.
Hringtorgið hefur valdið töluverðum ruglingi. Það er næstum því flatt og fólk er ekki þvingað til að keyra hringinn heldur getur keyrt í gegnum það. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir því að hringtorgið verði skoðað með tilliti til öryggis.
Í tillögu Sjálfstæðismanna voru lagðar til úrbætur sem myndu gera það skýrt í huga ökumanna hvort um hringtorg eða venjuleg gatnamót sé að ræða.
„Nú virðist nokkur óvissa ríkja um það, sem getur tvímælalaust valdið misskilningi og hættu. Áhersla verði lögð á að tryggja öryggi óvarinna vegfarenda við gatnamótin,“ segir í tillögunni.
Tillögunni var frestað en tekin til meðferðar eftir að umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar barst rétt fyrir jól en þar var ekki talin ástæða til að bregðast við. Eins og áður segir var hún felld í gær með atkvæðum meirihlutaflokkanna Framsóknarflokks, Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata. En fulltrúi Vinstri grænna greiddi einnig atkvæði gegn henni.
„Vegna vinstribeygju strætó á þessum stað er ekki æskilegt að hafa þarna hefðbundið hringtorg,“ segir í bókun meirihlutans. „Talið er að forgangur Úlfarsbrautar fram yfir Urðarbrunn valdi auknum umferðarhraða og þar með auka líkur á alvarlegri umferðarslysum. Því er tillagan felld. Slys á árinu 2024 virðist ekki hafa haft með útfærslu gatnamótanna að gera.“
Sjálfstæðismenn brugðust neikvætt við þessu og bentu á að slysið í október væri ekki það eina. Einnig bentu þeir á að íbúar hefðu kallað eftir úrbótum.
„Fjölmargir íbúar hafa óskað eftir úrbótum á umræddum gatnamótum þar sem ekki er skýrt hvort þar sé um hringtorg eða venjuleg gatnamót að ræða. Óvissa um slíkt hefur ítrekað valdið misskilningi og hættu,“ segir í bókun Sjálfstæðismanna. „Umsögn samgöngustjóra um tillöguna, þar sem segir að ekki sé talin ástæða til að bregðast sérstaklega við, lýsir skilningsleysi á ríkjandi aðstæðum.“
Samkvæmt slysaskrá Samgöngustofu hafi orðið tvö önnur umferðarslys á eða í nágrenni við gatnamótin sem hafa valdið slysum á fólki. Fyrir utan slysið á hinum átta ára dreng í október sem fjallað var um í fréttum liggja frekari upplýsingar frá árinu 2024 ekki fyrir.
Þá er bent á að samkvæmt slysakorti Samgöngustofu hafi verið skráð fimm óhöpp á gatnamótunum eða við þau á árinu 2023, tvö árið 2022, eitt árið 2021 og eitt árið 2019. Þar af hafi þrisvar sinnum verið ekið á fótgangandi fólk við biðstöð og þrisvar sinnum lentu tveir bílar saman.
„Svo virðist sem óhöppum í og við umrædd gatnamót fari fjölgandi og er ábyrgðarlaust að bregðast ekki við slíkri þróun,“ segja Sjálfstæðismenn.