fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fréttir

Segir ótrúlegt að fólk sé enn tilbúið að verja framkomu Brynjars Karls – „Ég get allavega ekki þagað lengur“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íþróttafræðingur veltir því fyrir sér hvort fólk léti það ótalið ef það sæi á förnum vegi fullorðna manneskju koma fram við barn eða ungmenni eins og körfuboltaþjálfarinn Brynjar Karl Sigurðsson kemur fram við leikmenn sína. Það sé kominn tími til að stöðva þessa framkomu hans.

Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari Aþenu, hefur verið harðlega gagnrýndur undanfarinn sólarhring eftir viðtal við Vísi sem var tekið við hann eftir tap Aþenu á móti Þór Akureyri í gærkvöldi. Um var að ræða áttunda tapið í röð og er liðið í neðsta sæti deildarinnar.

Í viðtalinu kallaði Brynjar leikmenn sína aumingja sem skorti karakter.

„Ég var náttúrulega bara að drulla yfir nokkrar stelpur,“ sagði hann í viðtalinu og líka: „Við bara virðumst alltaf finna leiðir til að vera fokking aumingjar sko.“

Hann bað svo blaðamann afsökunar á því að hafa blótað oft í viðtalinu, hann væri bara svo vanur að nota þannig orðalag í leikjum. Hann brást þó illa við þegar blaðamaður spurði hvort hann hefði íhugað að beita öðrum aðferðum en blótsyrðum og öskrum.

„Hvaða hippamussukomment er þetta? Get a life. Þetta eru bara alvöru stelpur hérna, myndirðu spyrja einhvern að þessu í karlaboltanum?“

Hann taldi ljóst að blaðamaður þekkti lítið til körfubolta þar sem „þetta er svona í strákaboltanum“.

Sjá einnig: Brynjar umdeildur – Lofaður fyrir að valdefla stúlkur en gagnrýndur fyrir að afreksvæða íþróttir ungra barna

Börn farið illa úr því að hafa hann sem þjálfara

Þessi talsmáti Brynjars, sem og framkoma hans í garð leikmanna, fór öfugt ofan í marga sem hafa gagnrýnt hann á samfélagsmiðlum. Þar hefur fólk meðal annars spurt hvers vegna Brynjar fái yfir höfuð að þjálfa ungmenni og hvort framkoma hans brjóti ekki siðareglur um samskipti þjálfara við lið sitt.

Bjarney Láru Bjarnadóttir, íþróttafræðingur og framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar, segist ekki geta þagað lengur. Framkoma Brynjars sé óverjandi og óskiljanlegt hvers vegna fólk sé sífellt tilbúið að verja hann.

Hún minnir á þekkta frasann: Það eina sem hið illa þarf til að sigra er að gott fólk geri ekkert.

„Ég hef ekki nennt að tjá mig um þennan mann eftir harða og nánast hatramma rimmu hérna um árið þar sem fólk varði hann út í rauðan dauðann þrátt fyrir að þá þegar voru börn sem höfðu farið mjög illa út úr því að hafa haft hann sem þjálfara.“

Hún bendir á viðtalið við hann á Vísi í gær sem var með fyrirsögnina: „Fokking aumingjar“ en þeim orðum beindi hann til leikmanna sinna. Hún bendir eins á að í nýlegu hlaðvarpsviðtali gekkst Brynjar við því að skipta stundum leikmönnum í lið á æfingum eftir útliti þeirra.

„„Ljótar á móti sætum”. Ég get rétt ímyndað mér að vera 18-19 ára stelpa og vera sett í ljóta liðið.“

Með færslu sinni birtir Bjarney myndband frá leik Aþenu í síðustu viku þar sem Brynjar hellir sér yfir leikmann og ýtir í hana í reiði. Hún veltir fyrir sér hvernig Brynjar komi fram við leikmenn á bak við luktar dyr þegar þetta er framkoman sem hann leyfir sér fyrir framan myndavélarnar.

„Þetta myndband er svo frá leik í síðustu viku þar sem hann er ekki bara öskrandi og ógnandi gagnvart mikið yngri leikmanni heldur slær/ýtir í hana að auki í bræðiskasti (það sem er kannski sjúkast í þessu er að Aþenu gekk vel á þessum tímapunkti). Þetta gerir hann fyrir framan myndavélar, hvað leyfir hann sér á bakvið luktar dyr?“

Ótrúlegt að fólk sé enn tilbúið að verja hann

Bjarney segist ekki trúa því að fólk sé enn tilbúið að koma aðferðum Brynjars til varna eða að nokkur sé tilbúinn að spila körfubolta með hann sem þjálfara. Hún biður fólk að velta því fyrir sér hvernig það myndi bregðast við ef það sæi fullorðna manneskju koma viðlíka fram við barn eða ungmenni á almannafæri. Ef slík framkoma er óboðleg almennt, hvers vegna er hún skyndilega boðleg á íþróttavelli?

„Ég hreinlega trúi því ekki að það sé ennþá til fólk sem er tilbúið að verja hann, og ég skil ekki að nokkur vilji að spila undir hans stjórn. En ég veit líka að það getur verið erfitt að losa sig úr ofbeldissambandi þannig að ég vona að þessir einstaklingar séu með heilsteypt fólk í kringum sig sem getur hjálpað þeim að stíga út úr þessum óheilbrigðu aðstæðum.

Ef sambærilegt atvik myndi gerast í Kringlunni eða annars staðar á förnum vegi þá yrði hringt á lögregluna og viðkomandi að öllum líkindum kærður, af hverju er þetta talið í lagi (eða látið óátalið, ég held að fæstum finnist þetta í lagi) á íþróttavelli?

Ég get allavega ekki þagað lengur og vona að stigið verði inn í þetta á einhvern hátt, þetta er ekkert annað en ofbeldi og ofbeldi á aldrei að líðast.“

Fjölmargir taka undir með Bjarneyju í athugasemdum við færslu hennar. Hún bætir sjálf við í athugasemd að hún viti til þess að fullt af börnum hafi hrökklast í burtu út af framkomu hans, sum hver með kvíðaröskun. Samt séu alltaf til foreldrar sem eru tilbúnir að hoppa á vagninn og láta framkomuna viðtangast átölulaust.

„Þegar þeim er seld hugmyndin um að barnið þeirra sé á einhvern hátt sérstakt þá virðist öll rökhugsun fljúga út um gluggann.“

Lengi verið umdeildur

Brynjar hefur síðustu ár verið einn umdeildasti körfuboltaþjálfari landsins, einkum eftir að heimildarmyndin Hækkum rána kom út. Aðferðir hans eru vægast sagt umdeildar og hann ýmist lofaður eða gagnrýndur. Hann segist vera að valdefla stúlkur með því að koma fram við þær eins og stráka.

Hann sagði í viðtali eftir tap í Bónusdeild kvenna í desember: „Ég er langbesti körfuboltaþjálfari á Íslandi og það vita það allir.“

Árið 2017 var hann sakaður um að hafa hrakið stúlkur úr Stjörnunni með þjálfunaraðferðum sínum. Þá hafði Stjarnan birt yfirlýsingu og sakað Brynjar um verulegt harðræði í garð stúlkna á aldrinum 9-10 ára. Framkoman hefði haft mikil áhrif á sumar stúlkurnar enda hafi Brynjar átt það til að taka reiðilestur yfir einstaka stúlkur á æfingum fyrir framan aðra iðkendur. Foreldri hafði sent bréf á Stjörnuna með átakanlegum lýsingum á þeim áhrifum sem þjálfunaraðferðir Brynjars höfðu á barn. Foreldrar og iðkendur voru innilega beðin afsökunar á framferðinu.

Brynjar sagði í viðtali við Podcast Sölva Tryggvasonar í júní í fyrra að hann hafi á einum tíma líklega verið hataðasti maðurinn í sögu íþróttahreyfingarinnar. Hann þjálfi stelpur með sömu aðferðum og hann þjálfi stráka. Það sé þó hrópandi hræsni í kringum það hvernig þeirri aðferð hefur verið tekið. Honum er hrósað fyrir að ganga fram við stráka af hörku en þegar kemur að stúlkum „verður allt vitlaust“. Hann neitar að fórnarlambavæða leikmenn sína eða að tipla í kringum þær á tánum bara því þær eru stelpur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Flugslys í Bandaríkjunum í nótt: Óttast að tugir hafi farist þegar farþegaflugvél lenti í árekstri við herþyrlu

Flugslys í Bandaríkjunum í nótt: Óttast að tugir hafi farist þegar farþegaflugvél lenti í árekstri við herþyrlu
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hæstiréttur staðfestir að Ingi Valur nauðgaði 16 ára stjúpdóttur besta vinar síns – Dómurinn klofinn út af framburði nýrra vitna

Hæstiréttur staðfestir að Ingi Valur nauðgaði 16 ára stjúpdóttur besta vinar síns – Dómurinn klofinn út af framburði nýrra vitna
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ríkið tapaði á beiðni Skattsins um gjaldþrotaskipti

Ríkið tapaði á beiðni Skattsins um gjaldþrotaskipti