fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fréttir

Inga Sæland – Kvótakóngarnir í Mogganum fái tvisvar sinnum hærri styrk en Flokkur fólksins

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 10:00

Inga minnti á að ársreikningur Flokks fólksins sé til sýnis hjá Ríkisendurskoðun.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ekkert óhreint mjöl í pokahorninu varðandi fjárreiður Flokks fólksins. Allir geti séð ársreikningana hjá Ríkisendurskoðun. Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármálaráðherra, hafi verið í góðri trú eins og allir þegar styrkir voru greiddir út.

„Það er hafið yfir allan vafa að hver einasti af þessum flokkum er stjórnmálaflokkur. Hafa verið mislengi inni á þingi og jafn vel við stjórn. Ég er ekkert í vafa að við leiðréttum og lögum þá misbresti sem eru orðalagsbreytingar á samþykktum,“ sagði Inga í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. En þar var hún spurð út í ríkisstyrki til flokksins, sem eins og nokkrir aðrir flokkar, voru skráðir sem félagasamtök.

Inga sagði að hún hefði ekki lesið hvert einasta orð laganna þegar þau voru samþykkt árið 2021 heldur meginstef og markmið. Svona lagað geti farið undir radar þegar enginn flaggi neinu.

Rangri skráningu var flaggað við Flokk fólksins í sumar og Inga sagðist hafa fengið að vita þetta í september. Höfðu styrkirnir athugasemdalaust verið greiddir út til flokkanna.

„Bjarni Benediktsson var fjármálaráðherra þegar þetta var greitt út. Hann var í góðri trú eins og við öll,“ sagði Inga.

Fari vel með fjármuni

Landsfundur var auglýstur í byrjun október og stóð til að halda hann í nóvember. En allt í einu sprakk ríkisstjórnin og flokkurinn var kominn á fullt í kosningabaráttu. Inga sagði að flokkurinn hafi farið vel með fé og notað peningana til að reka góðar kosningabaráttur. Þegar hann var stofnaður hafi hann ekki átt eina krónu.

Sjá einnig:

Sigurjón segir að margir hafi hlaupið á sig – Nefnir meðal annars Sindra Sindrason og Dr. Football

„Ég held að Flokkur fólksins sé einn best rekni flokkurinn því við höfum farið mjög vel með okkar fjármuni,“ sagði hún. „Við höfum reynt að halda utan um það þannig að það nýtist Flokki fólksins sem best þegar við erum að fara í kosningabaráttu. Enda höfum við haft efni á því að reka góða kosningabaráttu í tvö síðustu skipti.“

Mogginn fái mun meira frá skattgreiðendum

Nefndi hún að Morgunblaðið, sem hefði mikið skrifað um Flokk fólksins, fái mun hærri styrki. Dapurt sé þegar verið sé að búa til tortryggni þegar hún eigi ekki rétt á sér.

„Mogginn einn og sér fær nú tvisvar sinnum hærri styrk, kvótakóngarnir þar, frá skattgreiðendum heldur en til dæmis stjórnmálaflokkurinn Flokkur fólksins sem þeir eru með á heilanum,“ sagði hún.

Bókhaldið til sýnis hjá Ríkisendurskoðun

Hafnaði hún því alfarið að nokkurt óhreint mjöl væri í pokahorninu varðandi fjármál Flokks fólksins. Bókhaldið sé til sýnis hjá Ríkisendurskoðun.

„Ríkisendurskoðun sér það þegar hún fer yfir okkar ársreikning hvaðan rekstrarfé okkar kemur. Athugasemdalaust hefur þetta verið látið ganga. Alveg eins og þegar féð er greitt út,“ sagði Inga.

Aðspurð um áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið, í ljósi þess að samstarfsflokkurinn Viðreisn sé núna í fjármálaráðuneytinu sagði hún málið ekki hafa nein áhrif á það. Hún minnti á að hún sé lögfræðingur og virði þær reglur sem gilda í landinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ríkið tapaði á beiðni Skattsins um gjaldþrotaskipti

Ríkið tapaði á beiðni Skattsins um gjaldþrotaskipti
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Blaðamaður Mannlífs kvartaði nafnlaust undan Stefáni Einari – En svo var nafnið gefið upp

Blaðamaður Mannlífs kvartaði nafnlaust undan Stefáni Einari – En svo var nafnið gefið upp
Fréttir
Í gær

Kona fór af stað í fæðingu í flugvél nálægt Íslandi – Neyðarlending í Keflavík

Kona fór af stað í fæðingu í flugvél nálægt Íslandi – Neyðarlending í Keflavík
Fréttir
Í gær

Sigurjón segir að margir hafi hlaupið á sig – Nefnir meðal annars Sindra Sindrason og Dr. Football

Sigurjón segir að margir hafi hlaupið á sig – Nefnir meðal annars Sindra Sindrason og Dr. Football
Fréttir
Í gær

Hræ af 14 metra búrhval í Guðlaugsvík

Hræ af 14 metra búrhval í Guðlaugsvík
Fréttir
Í gær

Albanskur fíkniefnasali sem þóttist eiga kærustu þarf ekki að vera lengur á Íslandi

Albanskur fíkniefnasali sem þóttist eiga kærustu þarf ekki að vera lengur á Íslandi