fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fréttir

Albanskur fíkniefnasali sem þóttist eiga kærustu þarf ekki að vera lengur á Íslandi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. janúar 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að albanskur maður sem grunaður er um fíkniefnasölu þurfi að halda sig á Íslandi og tilkynna sig alla virka daga á lögreglustöð. Þegar maðurinn var handtekinn í síðastliðnum mánuði fundust skilaboð í síma hans sem gáfu til að kynna að hann væri hér á landi til að selja fíkniefni. Sagðist maðurinn vera með kærustu sinni á landinu en vissi ekki símanúmer hennar eða fæðingardag og lögreglan fann engar upplýsingar í sínum kerfum um það nafn sem maðurinn gaf upp á hinni meintu kærustu. Á meðan mál mannsins var til meðferðar í dómskerfinu tók Útlendingastofnun ákvörðun um að vísa honum úr landi.

Í úrskurði héraðsdóms var ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum frá 18. desember um að maðurinn skyldi halda sig á Íslandi fram til 22. janúar og tilkynna sig á lögreglustöð alla virka daga staðfest. Í því skyni var hald lagt á vegabréf hans.

Í úrskurðinum kemur fram að 18. desember var maðurinn stöðvaður af lögreglu í Reykjanesbæ við akstur bifreiðar sem reyndist vera óvátryggð. Maðurinn var beðinn um að framvísa vegabréfi sínu en sagðist ekki vera með það. Var hann þá handtekinn en framvísaði við það albönsku vegabréfi. Það var kannabislykt af manninum og því var hann færður til blóðsýnatöku. Aðspurður um dvalarstað sagðist maðurinn ekki vita hvar hann væri en taldi að sá staður væri líklega í Reykjavík.

Meint kærasta

Maðurinn tjáði lögreglunni að hann ætlaði sér að dvelja á hóteli með kærustu sinni en hann vissi ekki á hvaða hóteli og nafnið sem hann gaf upp á kærustunni fannst ekki í kerfum lögreglu. Þá vissi maðurinn ekki fæðingardag eða símanúmer kærustunnar. Hann vissi ekki heldur sitt eigið símanúmer. Maðurinn sagði síðan að kærastan ætlaði að fljúga til Mílanó þetta sama kvöld en ekkert flug var skráð þangað næstu 12 klukkustundirnar.

Maðurinn var með 16.000 krónur í reiðufé á sér. Hann vildi ekki gera grein fyrir tilgangi dvalar sinnar á Íslandi og kvaðst ekki eiga vini á landinu. Hann heimilaði lögreglu að skoða farsíma sinn og þá mátti sjá að hann hafði verið að eyða tengiliðum og skilaboðum. En þau skilaboð sem honum hafði ekki tekist að eyða tengdust öll sölu á kókaíni. Tveir aðilar voru að senda honum marga tugi skilaboða á dag með heimilisföngum þangað sem sóknaraðili ætti að fara með kókaín svo og um magn og styrkleika fíkniefnanna. Þá var hann einnig í sambandi við konur sem stunda vændi á Íslandi.

Manninum var vísað frá Íslandi 1. október 2023 og fluttur frá landinu á kostnað íslenska ríkisins. Í skýrslutöku hjá lögreglu sagðist maðurinn búinn að vera í 10 daga hér á landi en samkvæmt vegabréfi hans var hann búinn að vera 24 daga á landinu og hann sagði þá að það gæti verið rétt. Hann gat ekki upplýst hver ætti bifreiðina sem hann var á en sagði að vinur sinn þekkti eiganda hennar. Í fyrstu viðurkenndi hann kókaínsölu en dró það síðan til baka. Varðandi tilgang dvalar sinnar hér á landi breytti hann sífellt framburði sínum, að sögn lögreglu.

Tíminn liðinn

Héraðsdómur staðfesti ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, um að maðurinn yrði að halda sig á landinu og tilkynna sig alla virka daga, 15. janúar síðastliðinn en daginn áður vísaði Útlendingastofnun honum úr landi. Héraðsdómur vísaði meðal annars til þess að maðurinn væri grunaður um refsiverða háttsemi og að hann hefði ekki sagt satt um tilgang dvalar sinnar hér á landi.

Maðurinn neitaði því að hann hefði brotið lög og sagði lögreglustjórann hafa tekið sér dómsvald með því að leggja hald á vegabréf hans.

Landsréttur felldi úrskurðinn úr gildi þar sem sá tími sem, samkvæmt lögum, heimilt væri að leggja þessa skyldu á manninn væri liðinn og ekki hefði verið farið fram á að dómari heimilaði að gildistíminn yrði framlengdur.

Þessi niðurstaða breytir því væntanlega ekki að manninum hefur verið vísað úr landi en hvort hann bíður eftir brottvísuninni eða fer sjálfviljugur úr landi hefur DV ekki upplýsingar um.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Páll fékk rukkun upp á 7 krónur frá Skattinum – „Ég krefst þess að fá að skipta greiðslunni í tvennt!“

Páll fékk rukkun upp á 7 krónur frá Skattinum – „Ég krefst þess að fá að skipta greiðslunni í tvennt!“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Stefán Einar útilokar ekki að fara að í pólitík og formannsframboð hjá Sjálfstæðisflokknum

Stefán Einar útilokar ekki að fara að í pólitík og formannsframboð hjá Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Í gær

Inga biðst afsökunar á símtalinu umdeilda

Inga biðst afsökunar á símtalinu umdeilda
Fréttir
Í gær

Egill telur að mál Flokks fólksins sé stormur í vatnsglasi – Hallgrímur segir að Inga sæti stöðugu einelti

Egill telur að mál Flokks fólksins sé stormur í vatnsglasi – Hallgrímur segir að Inga sæti stöðugu einelti