Aðalmeðferð fór fram í málinu í gær og er fjallað um hana á vef Vísis.
„Ég sá engan mann, eða neitt yfirleitt,“ hefur Vísir eftir manninum sem er á sjötugsaldri. Maðurinn kvaðst hafa langa reynslu af því að aka hinum ýmsu þungaflutningabílum og var búinn að ákveða að hætta áður en slysið varð.
Sjá einnig: Gáleysi ökumanns vörubifreiðar og ófullnægjandi aðstæður á Ásvöllum urðu Ibrahim að bana
„Það var skelfilegt að enda ferilinn svona,“ sagði maðurinn og nefndi að slysið hefði haft mikil áhrif á hann. Nánar er fjallað um réttarhöldin á vef Vísis.
Ibrahim var að koma af fótboltaæfingu hjá Haukum þegar slysið varð við bílastæði á milli Ásvallalaugar og íþróttahúss Hauka á Ásvöllum. Er bílstjóranum gefið að sök að hafa ekið bifreiðinni án nægjanlegrar aðgæslu inn á bílastæði Ásvallalaugar án þess að virða forgang hjólreiðamanna og víkja fyrir þeim.
Ibrahim var að hjóla á gangstéttinni í sömu átt og steypubílnum var ekið og beygði bifreiðin í veg fyrir hann þegar henni var ekið inn á bílastæðið við Ásvallalaug.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa gaf út skýrslu um slysið þann 8. Janúar síðastliðinn. Var það niðurstaða skýrslunnar að meginorsök slyssins hafi verið sú að ökumaðurinn hafi ekki veitt Ibrahim athygli. Aðrar orsakir voru þær að aðkoma vinnutækja og umferð óvarinna vegfarenda um svæðið þar sem slysið varð, sem var vinnusvæði, var ekki nægilega afmörkuð.