Í frétt CBS News kemur fram að aðstandandi barnanna hafi tilkynnt um hvarf þeirra til lögreglunnar í Canton í Ohio í lok októbermánaðar. Sagði aðstandandinn að 34 ára móðir barnanna hafi glímt við geðræn veikindi og hætt að taka lyfin sín. Þá hefði hún yfirgefið íbúð sína og börnin að hætt að mæta í skólann.
Fulltrúar U.S. Marshal Service, löggæslustofnunar sem heyrir undir bandaríska dómsmálaráðuneytið, ráku slóð barnanna og móðurinnar til Denver í Colorado. Þaðan til Lundúna og eyjunnar Jersey á Ermarsundi áður en þau komu til Íslands í „afskekkt sjávarþorp“ eins og það er orðað.
Lögregluyfirvöld á Íslandi eru svo sögð hafa rakið slóðina á hótel í Reykjavík þar sem börnin fundust þann 10. janúar síðastliðinn. Börnunum var komið fyrir í umsjá barnaverndaryfirvalda hér á landi þar til ættingi barnanna kom til landsins en móðurinni var komið undir læknishendur á sjúkrahúsi. Þar mun konan dvelja uns hún nær heilsu til að ferðast aftur til Bandaríkjanna.
Pete Elliott, sem fór með rannsókn málsins vestan hafs, segir að verkefnið hafi verið umfangsmikið og það sé aldrei auðvelt að samræma aðgerðir þegar nokkur lönd koma við sögu eins og í þessu tilviki. Þakkar hann löggæsluyfirvöldum hér á landi fyrir aðstoðina við að koma börnunum í öruggt skjól.