Rúmlega átta þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Afar hratt hefur safnast á listann.
„Við undirrituð biðlum til stjórnvalda að stöðva leyfisveitingu til sjókvíaeldis í Seyðisfirði,“ segir í tilkynningu með listanum á vefsvæðinu island.is. „Löggjöf um sjókvíaeldi og eftirlit með greininni er í molum. Um það erum við öll sammála og ný ríkisstjórn boðar úrbætur. Við þær aðstæður er fráleitt að úthluta nýjum leyfum.“
Bent er á að um leið og áform um sjókvíaeldið hafi verið kynnt árið 2020 hafi 55 prósent bæjarbúa skrifað undir undirskriftalista gegn starfseminni. Árið 2023 hafi könnun sýnt að mikill meirihluti, 75 prósent, Seyðfirðinga væru á móti sjókvíaeldi í firðinum. Einnig er vísað í könnun á landsvísu sem sýni að 61 prósent landsmanna séu neikvæð gagnvart áformunum en aðeins 16 prósent jákvæð.
„Á öllum stigum og með öllum leiðum hefur verið mótmælt en ekki verið hlustað!“ segir í tilkynningunni. „Svæðið sem á að leggja undir sjókvíaeldi er sameign þjóðarinnar.“
Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út á mánudag, 20. janúar. Undirskriftalistinn var stofnaður 13. janúar og þegar þetta er skrifað hafa 8.148 skrifað undir.
Hægt er að skrifa undir listann hér.