Fljótlega eftir að skipin sukku, óljóst er hvort þau sukku vegna veðurs eða hvort Úkraínumenn sökktu þeim, byrjaði olía að berast upp á strendur við Anapa og Temrjuk í Krasnodarhéraðinu. Tveimur dögum síðar sagði Vladímír Pútín, forseti, að hér væri um „augljósar umhverfishörmungar“ að ráða.
Á jóladag var neyðarástandi lýst yfir í Krasnodar vegna mengunarinnar.
Þann 4. janúar hafði olían náð til Feodosia, Sudak, Alusita og að ströndinni utan við Sevastopol.
Pútín er ekki sáttur við hvernig staðið hefur verið að málum eftir að skipin sukku. Á ríkisstjórnarfundi á fimmtudaginn sagði hann þetta vera eitt stærsta umhverfisslysið á síðari árum í Rússlandi. Interfax skýrir frá þessu.
„Miðað við það sem ég sé og þær upplýsingar sem ég fæ, þá tel ég að ekki hafi nægilega mikið verið gert til að lágmarka tjónið fram að þessu,“ sagði hann einnig.
Rússneskir fjölmiðlar og umhverfisverndarsamtök hafa fjallað um áhrif mengunarinnar og birt myndir af fuglum, löðrandi í olíu, og öðrum dýrum. Að minnsta kosti 32 höfrungar hafa fundist dauðir. Mörg þúsund sjálfboðaliðar hafa unnið að hreinsun á strandlengjunni síðustu vikur.