Herdeildin er áratugagömul en hún var upphaflega stofnuð á grunni þjóðernishyggju. Hún hefur verið mikið notuð í rússneskum áróðri þar þjóðernishyggjuuppruni hennar er notaður sem „sönnun“ fyrir því að Úkraína sé byggð nasistum.
The Guardian segir að foringi herdeildarinnar hafi sagt að vonast sé til að hægt verði að fá fólk með reynslu af hermennsku til liðs við hana. Það sé mikil þörf fyrir aðstoð erlendis frá því Úkraína sé miklu minni en Rússland.
Útlendingar, sem sækja um að komast í herdeildina, verða að ganga í gegnum inntökuferli, þar á meðal er að mæta í viðtal í Kyiv. Síðan tekur við tveggja til þriggja mánaða þjálfun og gildir það einnig fyrir þá sem hafa gegnt herþjónustu.
Að þjálfuninni lokinni munu nýju hermennirnir ganga til liðs við fótgönguliðssveitir.