Volodymyr Zelenskyy, Úkraínuforseti, sagði í síðustu viku að um 4.000 norðurkóreskir hermenn hafi fallið eða særst í stríði Rússa við Úkraínu en Norður-Kóreumennirnir berjast með Rússum.
Í kjölfarið birti úkraínski herinn hluta úr dagbók fallins norðurkóresks hermanns að nafni Jong Kyong Hong. Í henni eru stríðsteikningar og ótrúlegar stefnuyfirlýsingar.
The Wall Street Journal segir að dagbókin hafi fundist rétt fyrir jól þegar eigandi hennar féll í skotbardaga við úkraínska hermenn.
Meðal þess sem er í bókinni er teikning sem sýnir þrjár manneskjur og dróna. Í skýringartexta með myndinni eru manneskjurnar sagðar vera tálbeitur fyrir dróna. „Ef við sjáum dróna, þá söfnumst við saman í þriggja manna hópa. Einn á að vera tálbeita til að blekkja drónann en hinir tveir reyna að skjóta hann niður. Tálbeitan á að halda sig í sjö metra fjarlægð frá drónanum,“ skrifaði norðurkóreski hermaðurinn í dagbókina sína.
The Wall Street Journal ræddi við fyrrum norðurkóreskan hermann, Ryu Seong-hyeon að nafni, sem tókst að flýja frá einræðisríkinu 2019. Hann sagðist telja að flest bendi til að dagbókin hafi tilheyrt norðurkóreskum hermanni og segir að orðalag og það hvernig Rússland er stafað bendi til þess.
Ótrúlegar stefnuyfirlýsingar eru í dagbókin, sem sýna ótakmarkaða hollustu hermannsins við einræðisstjórnina í Norður-Kóreu.
„Ég mun sýna heiminum hversu hugrakkar úrvalssveitir Kim Jong-un eru,“ skrifaði hann og bætti síðan við: „Þrátt fyrir að það kosti mig lífið, mun ég fylgja fyrirmælum yfirmanna minna án þess að hika.“