Í þáttunum fara þau Steindi Jr. og Saga Garðarsdóttir með aðalhlutverkin en í umræddu atriði var fylgst með fæðingu á fæðingardeild Landspítalans.
Steindi Jr. brá sér þar í hlutverk hins ábyrgðarfulla maka sem er tilbúinn að leggja ýmislegt á sig til að uppfylla strangar kröfur hinnar verðandi móður um fullkomna fæðingu. Biður hún til dæmis um að fá sjálfan Sigurstein Másson til að lesa upp Sönn íslensk sakamál fyrir hana svo fátt eitt sé nefnt. Atriðið má sjá hér að neðan.
Unnur dregur ekki fjöður yfir það að atriðið hafi verið frábært en hún er samt hugsi yfir hinni fullkominni fæðingu.
„Hvað er fullkomin fæðing ? Áður fyrr var það heilbrigð kona heilbrigt barn. Núna er þetta orðið svo flókið og væntingar oft ekki alveg raunhæfar. Hér vantaði td Lavenderspýturnar til að fullkomna fæðinguna,“ segir Unnur í færslu á Facebook-síðu sinni.
„Er ekki málið að ofhugsa ekki hlutina, vera búin að kynna sér hvað er í boði, treysta á sig og sinn líkama og njóta þess að vera í mikilvægasta verkefni lífs síns. Taka því sem á höndum ber og vinna sem best úr því í núinu,“ spyr hún.
Að hennar mati er ekkert eins merkilegt og stórt í lífinu og það að eignast börnin okkar.
„En að allt sé ,,fullkomið í fæðingunni” er óþarfa og óraunhæf pressa. Það er hægt að njóta og meta án fullkomnunar. Á Íslandi eru sem betur fer margir valkostir í boði og vel menntað heilbrigðisstarfsfólk og árangur með þvi besta í heiminum. Ekki fullkomið kerfi en gott kerfi. Höldum því,“ segir hún að lokum.