fbpx
Sunnudagur 13.apríl 2025
Fréttir

Frændi frá helvíti dæmdur í þriggja ára fangelsi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 11. apríl 2025 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður var í héraðsdómi Reykjaness sakfelldur fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn frænku sinni er hún var undir lögaldri auk vörslu barnaníðsefnis og brota á vopnalögum.

Í fyrsta lið ákærunnar gegn manninum er hann sagður hafa brotið margoft gegn barnungri náfrænku sinni á tímabilinu 2014 til 2017. Brotin voru meðal annars framin í bíl mannsins en í ákæru segir meðal annars:

„Nauðgun og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa í fjölda skipta haft samræði og önnur kynferðismök við A, á þáverandi heimili hennar að […], á ofangreindu heimili ákærða, í húsi […] A að […] og í ótilgreindri bifreið á óþekktum stað, en ákærði hafði í fjölda skipta samræði við A, lét hana hafa munnmök við sig og hafði munnmök við hana, nuddaði kynfæri hennar innanklæða og fór með fingur inn í leggöng hennar, lét hana snerta kynfæri hans og fróa honum, þuklaði á brjóstum hennar og kynfærum innan- og utanklæða og kyssti hana tungukossum.“

Maðurinn er einnig ákærður fyrir tvö tilvik kynferðislegrar áreitni gegn stúlkunni á heimili hennar.

Hann er einnig sakaður um að hafa tekið ósiðlegar myndir af barninu og þannig framleitt barnaníðsefni en þetta er orðað þannig í ákæru:

„Kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum, með því að hafa á ótilgreindum stað á óþekktan farsíma tekið nektarmynd af […] þar sem sást í brjóst og kynfæri […] og þannig framleitt myndefni sem sýnir barn á kynferðislegan og klámfenginn hátt en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt og ruddalegt athæfi.“

Einnig er hann í þessum ákærulið sakaður um að hafa útbúið og  haft í vörslu sinni á farsíma myndefni sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Lögreglan lagði hald á símann við húsleit hjá manninum í nóvember árið 2022. Efninu og athöfnum mannsins er lýst á eftirfarandi hátt í ákæru:

„5.1) Aðfaranætur mánudagsins 7. mars og þriðjudagsins 8. mars 2022, tekið og/eða vistað skjáskot af myndskeiði af […] klæddri nærfatatopp og síðan útbúið og haft í vörslum sínum falsað myndefni, alls 3 ljósmyndir, þar sem búið var að fjarlægja fatnað stúlkunnar þannig hún virtist vera nakin.

5.2) Á tímabilinu aðfaranótt laugardagsins 13. til aðfaranætur föstudagsins 25. febrúar 2022, tekið og/eða vistað skjáskot af myndskeiði af […] klæddri bikiníi og síðan útbúið og haft í vörslum sínum falsað myndefni, alls 3 ljósmyndir, eina mynd þar sem búið var að fjarlægja bikinítopp þannig [..] virtist vera hálfnakin og tvær myndir þar sem búið var að fjarlægja bikinífatnað stúlkunnar þannig hún virtist vera nakin.

5.3) Aðfaranótt miðvikudagsins 17. febrúar 2022, vistað mynd af […] klæddum sundbolum og síðan útbúið og haft í vörslum sínum falsað myndefni, þar sem búið var að fjarlægja sundföt stúlknanna þannig þær virtust vera naktar.“

Mikið magn af barnaníðsefni

Myndefni sem sýnir kynferðislega misnotkun á börnum var að finna á fartölvu mannsins sem lögregla lagði hald á við áðurnefnda húsleit. Var hann með 840 slíkar ljósmyndir í tölvunni en auk þess hafði hann opnað að minnsta kosti 60 grunnnetsíður með slíku efni og skoðað hátt í 5000 undirsíður þeirra.

Í þriðja lagi er maðurinn síðan ákærður fyrir vopnalagabrot en við húsleitina fannst svört skammbyssa af gerðinni Zoraki og svört gasbyssa. Var lagt hald á þessi vopn.

Sjálfur ungur

Hluta brota sinna framdi maðurinn gegn frænku sinni er hann var sjálfur undir 15 ára aldrei. Var hann ekki sakfelldur fyrir þau brot. Framburður stúlkunnar þótti mjög trúverðugur og í samræmi við rannsóknargögn.

Niðurstaðan var sú að maðurinn var dæmdur í þriggja ára fagelsi og til greiðslu fjögurra milljóna króna í miskabætur til brotaþolans.

Dóminn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Geðlæknir með áratugareynslu varar við: „Ekkert sambærilegt úrræði er til“

Geðlæknir með áratugareynslu varar við: „Ekkert sambærilegt úrræði er til“
Fréttir
Í gær

Fyrrum forstöðumaður sambýlis á Blönduósi ákærður fyrir umboðssvik í opinberu starfi og fjárdrátt

Fyrrum forstöðumaður sambýlis á Blönduósi ákærður fyrir umboðssvik í opinberu starfi og fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Jakob Bjarnar skrifaði bréf til þjófsins og í kjölfarið gerðust undarlegir hlutir

Jakob Bjarnar skrifaði bréf til þjófsins og í kjölfarið gerðust undarlegir hlutir
Fréttir
Í gær

Jóhannes ómyrkur í máli og segir Ísland vera að tapa samkeppninni

Jóhannes ómyrkur í máli og segir Ísland vera að tapa samkeppninni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hryllingur á hjúkrunarheimili – Starfsmaður réðst á vistmann

Hryllingur á hjúkrunarheimili – Starfsmaður réðst á vistmann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurbjörg birtir dæmi um mikla hækkun í Kópavogi – „Já, þú last rétt“

Sigurbjörg birtir dæmi um mikla hækkun í Kópavogi – „Já, þú last rétt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hryðjuverkaógn á Íslandi – Segja einstaklinga hér á landi langa og geta framið voðaverk

Hryðjuverkaógn á Íslandi – Segja einstaklinga hér á landi langa og geta framið voðaverk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varar ríkisstjórnina við að breyta þessum málaflokki – „Myndi skaða samkeppnishæfni okkar á erlendum vettvangi“

Varar ríkisstjórnina við að breyta þessum málaflokki – „Myndi skaða samkeppnishæfni okkar á erlendum vettvangi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðrún fór með 15 ára dóttur sinni á fótboltaleik – Blöskraði það sem hún sá

Guðrún fór með 15 ára dóttur sinni á fótboltaleik – Blöskraði það sem hún sá