fbpx
Fimmtudagur 17.apríl 2025
Fréttir

Varaleið um gervihnetti komin í rekstur hjá Farice

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 10. apríl 2025 13:45

Tölvugerð mynd Farice.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Farice, sem tengir Ísland við umheiminn með fjarskiptasæstrengjunum FARICE-1, DANICE og IRIS, hefur tekið í rekstur varaleið fjarskipta um gervihnetti fyrir útlandasambönd.

Í tilkynningu frá Farice kemur fram að með varaleiðinni sé verið að styrkja fjarskiptaöryggi Íslands með því að gera gervihnattasambönd aðgengileg fyrir samfélagslega mikilvæg fyrirtæki og stofnanir.

Tilgangurinn sé að tryggja lágmarksnetsamband við útlönd ef til þess kæmi að fjarskiptasamband um alla sæstrengi við Ísland er rofið.

„Þessi nýja þjónusta, Varaleiðin, er útlanda internetgátt sem notar eingöngu gervihnetti og hefur Farice þróað hana undanfarin misseri. Hún er boðin í heildsölu til fjarskiptafyrirtækja og internetþjónustuaðila til endursölu. Markmiðið er að kerfislega mikilvægir aðilar skrái sig fyrir þjónustunni hjá sínu fjarskiptafyrirtæki eða internet þjónustuaðila. Farice mun virkja leiðina í samstarfi við fjarskiptafyrirtækin. Varaleiðin er ekki hugsuð fyrir almenna internetumferð heimila heldur fyrir mikilvæga innviði, stofnanir og fyrirtæki,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.

Þá segir að varaleiðin byggi á samnýtingu dreifðra móttökustaða auk fjölbreyttra gervihnattasambanda til þess að auka öryggi. Leiðin sé hönnuð til þess að virkjast sjálfkrafa við heildarútfall fjarskiptasambanda um sæstrengina án aðkomu tæknimanna.

Örn Orrason, sölu- og þróunarstjóri Farice, segir í tilkynningunni að Ísland geti ekki verið ótengt og ákveðnar sviðsmyndir hafi sýnt fram á mikilvægi þess að koma á varasambandi með gervihnöttum til að tryggja fjarskiptasamband fyrir allra nauðsynlegustu grunnþjónustu.

„Þjónustan er hönnuð þannig að gervihnattaleiðin virkjast sjálfkrafa fyrir skráða viðskiptavini missi landið alfarið samband um sæstrengi af einhverjum ástæðum.

Í grunnþjónustunni eru í upphafi tvö gervihnattafyrirtæki nýtt til að auka öryggið. Við virkjun er stýring umferðar gerð miðlæg og getur kerfið forgangsraðað notkuninni þannig að mikilvæg fjarskiptaumferð fái forgang. Ekki er þörf á að setja upp sérstakan búnað hjá viðskiptavinum heldur nýtist almenna internet tenging viðkomandi fyrirtækis.

Fyrstu viðskiptavinir geta tengst fljótlega og við teljum mikilvægt að allir kerfislega mikilvægir aðilar á Íslandi skrái sig fyrir þjónustunni. Þeir eiga að geta skráð sig fyrir þjónustunni hjá viðkomandi þjónustuaðila en við gerum ráð fyrir að flestir þjónustuaðilar endurselji þjónustuna. Við munum síðan með reynslunni þróa og styrkja þjónustuna enn frekar í samráði við hagsmunaaðila,“ segir Örn.

Örn Orrason, sölu- og þróunarstjóri Farice.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Hauki Ægi – Ákærður fyrir manndrápstilraun gegn sýrlenskum skutlara sem braut gegn dóttur kærustu hans

Dómur fallinn yfir Hauki Ægi – Ákærður fyrir manndrápstilraun gegn sýrlenskum skutlara sem braut gegn dóttur kærustu hans
Fréttir
Í gær

Maður á sjötugsaldri sparkaði í andlit lögreglumanns

Maður á sjötugsaldri sparkaði í andlit lögreglumanns
Fréttir
Í gær

Piltur sýknaður af nauðgun þrátt fyrir ósamræmi í framburði og þó að vitni hafi legið vakandi við hlið þeirra á meðan meint brot átti sér stað

Piltur sýknaður af nauðgun þrátt fyrir ósamræmi í framburði og þó að vitni hafi legið vakandi við hlið þeirra á meðan meint brot átti sér stað
Fréttir
Í gær

Draumaferðin breyttist í martröð – „Mikið svakalega er ég reið, sár og svekkt“

Draumaferðin breyttist í martröð – „Mikið svakalega er ég reið, sár og svekkt“