fbpx
Fimmtudagur 10.apríl 2025
Fréttir

Bændur fá stuðning eftir kuldakastið síðasta sumar

Ritstjórn DV
Mánudaginn 7. apríl 2025 07:17

Mynd: Eyþór Árnason.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að tillögu Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra að verja allt að 725 milljónum króna til stuðnings við bændur sem urðu fyrir tjóni vegna óvanalegs og erfiðs tíðarfars á landinu sumarið 2024.

Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins en sumarið var óvenju kalt samkvæmt Veðurstofu Íslands, eða það kaldasta á landsvísu síðan 1998.

„Stuðningur verður tvíþættur, annars vegar vegna afurða- og gripatjóns sem atvinnuvegaráðuneytið annast og hins vegar vegna tjóns á hey og uppskeru sem fellur undir hlutverk Bjargráðasjóðs. Gert er ráð fyrir að stuðningur verði greiddur til ríflega 300 búa,“ segir í tilkynningunni.

Þá er áætlað að tæp 60% af heildarstuðningi fari til framleiðenda á Norður- og Austurlandi en þau landsvæði urðu verst úti í kuldakastinu í júní 2024. Þá er áætlað að um 35% stuðningsins fari til framleiðenda á Suðurlandi þar sem rigning og kuldi ollu miklu tjóni á uppskeru.

„Fæðuöryggi er stórt öryggismál fyrir okkur á óvissutímum” segir atvinnuvegaráðherra í tilkynningunni. „Innlend matvælaframleiðsla spilar þar lykilhlutverk, því koma stjórnvöld til móts við bændur til að minnka þau áföll sem varð á búum í kjölfar kuldakastsins,“ segir ráðherra enn fremur.

Utan kuldakastsins á Norður- og Austurlandi í júní 2024 var tíðarfar erfitt víðar á landinu um sumarið, einkum vegna mikilla rigninga og hvassviðris.

Í júní snjóaði óvenju mikið á Norðurlandi miðað við árstíma, sumarið einkenndist af lægðagangi, mikilli vætutíð og var óvenjulega úrkomusamt um land allt. Hýsa þurfti búfé sem var komið á beit, sem ekki tókst í öllum tilvikum og fórst umtalsverður fjöldi gripa. Einkum var um að ræða sauðfé, en nokkur dæmi voru einnig um nautgripi og hross.

Þá hafði veðurfarið einnig neikvæð áhrif á uppskeru og afurðir ársins. Samkvæmt Hagstofu Íslands var kartöfluuppskera ársins 2024 sú minnsta síðan 1993, gulrótauppskera ársins sú minnsta í 11 ár og kornuppskera sú minnsta frá árinu 2018.

Til að gera viðbrögð skilvirkari og markvissari er gert ráð fyrir að framtíðarfyrirkomulag sjóða sem bæta náttúruvá verði endurskoðað, þ.m.t. samlegðar og hagræðingartækifæri. Að auki verður áfram unnið að stefnumótun um náttúruvá, sbr. skýrslu umhverfis- og auðlindaráðuneytis frá apríl 2023.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Elín Metta komin heim
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Tveimur samningsbrotamálum gegn Íslandi vísað til EFTA-dómstólsins

Tveimur samningsbrotamálum gegn Íslandi vísað til EFTA-dómstólsins
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Arna Magnea birtir hatursfull skilaboð frá þekktum einstaklingum

Arna Magnea birtir hatursfull skilaboð frá þekktum einstaklingum
Fréttir
Í gær

Bláskógabyggð sögð skaðabótaskyld

Bláskógabyggð sögð skaðabótaskyld
Fréttir
Í gær

Kristinn svarar pistli blaðamanns: „Ég var að biðja þessar ungu konur að færa fórn“

Kristinn svarar pistli blaðamanns: „Ég var að biðja þessar ungu konur að færa fórn“
Fréttir
Í gær

Umdeildur fyrirlesari á leið til Íslands – „Einn versti zíonistinn á netinu“

Umdeildur fyrirlesari á leið til Íslands – „Einn versti zíonistinn á netinu“
Fréttir
Í gær

Skítafýla skekur Skagamenn – „Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því hvað þetta er ógeðsleg lykt“

Skítafýla skekur Skagamenn – „Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því hvað þetta er ógeðsleg lykt“