fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Fréttir

Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 31. mars 2025 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessi fjórða kynslóð Mitsubishi Outlander markar nýtt tímabil fyrir einn vinsælasta tengiltvinnbílinn á Íslandi. Hann býður upp á betri aksturseiginleika, meiri þægindi og framúrskarandi fjórhjóladrif sem hentar íslenskum vegum fullkomlega. Það hefur nú þegar verið gríðarlegur áhugi og fjöldi fólks hefur lagt inn forpantanir. Það verður því mjög spennandi að frumsýna hann í vikunni.“

segir Hlynur Hjartarson vörustjóri Mitsubishi á Íslandi en Hekla kynnir nýjan Mitsubishi Outlander tengiltvinnbíl í höfuðstöðvum sínum á Laugavegi, dagana 31. mars – 5. apríl. Það er ljóst að margir Íslendingar bíða spenntir eftir að sjá nýjan Outlander enda hefur bíllinn notið gríðarlegra vinsælda hér á landi og var um árabil einn söluhæsti bíll landsins. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu.

Þær breytingar sem hafa verið gerðar á nýjum Outlander eru að stórum hluta tæknilegs eðlis og snúa að meiri sparneytni og afkastagetu. Bíllinn er búinn nýju og endurbættu drifkerfi sem býður upp á meiri drægni á rafmagni, kraftmikla hröðun og aukna mýkt í akstri sem veitir enn hljóðlátari og þægilegri akstursupplifun. Drægni bílsins er allt að 86 km á hreinu rafmagni (skv. WLTP), meðaleldsneytiseyðsla er 0,8 l/100km og losun koltvísýrings aðeins 18 g/km. Bíllinn býður upp á fjórhjóladrif með Super-All Wheel Control (S-AWC) kerfi, sem veitir einstakt grip og stöðugleika við allar aðstæður, hvort sem er í borgarakstri eða á krefjandi vegum landsins.

Nú með 8 ára ábyrgð

Með kaupum á nýjum Outlander PHEV fylgir 8 ára ábyrgð. Ábyrgðin er því framlengd um þrjú ár og endurnýjast á 12 mánaða fresti með árlegu viðhaldi og lýkur við átta ára aldur ökutækis eða 160.000 km akstur (hvort sem kemur fyrr). Ábyrgðin nær yfir alla helstu íhluti bílsins og veitir eigendum aukið öryggi og hugarró í allt að átta ár frá kaupdegi.

Nýr Outlander kemur í tvenns konar útfærslum. Invite útgáfan er vel búin og kemur meðal annars með 18″ álfelgum, leðurlíkisinnréttingu, rafdrifnu ökumannssæti, stafrænu mælaborði og Yamaha premium 8 hátalara hljóðkerfi. Instyle útgáfan er enn betur búin en það sem hún hefur meðal annars umfram Invite er leðurinnrétting, 20″ álfelgur, Yamaha Ultimate 12 hátalar hljóðkerfi, rafdrifin panorama sóllúga og fleira og fleira. Outlander er á verði frá 8.690.000 kr.

Hægt er að bóka tíma í reynsluakstur á mitsubishi.is eða í síma 590-5000.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Jón Þór í kjölfar byssuógnar í Grindavík – „Við hlúum að okkar fólki“

Jón Þór í kjölfar byssuógnar í Grindavík – „Við hlúum að okkar fólki“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Óttast að kvika flæði í sprungum undir Grindavík og komi upp þar

Óttast að kvika flæði í sprungum undir Grindavík og komi upp þar
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Ný sprunga búin að opnast nær Grindavík

Ný sprunga búin að opnast nær Grindavík
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Notkun á gagnvirkum skjám mun snaraukast

Notkun á gagnvirkum skjám mun snaraukast
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fengu litla sem enga aðstoð eftir slys: „Kom þá í ljós að það vissi enginn af þeim“

Fengu litla sem enga aðstoð eftir slys: „Kom þá í ljós að það vissi enginn af þeim“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Rýming í Bláa lóninu gekk vel

Rýming í Bláa lóninu gekk vel