fbpx
Miðvikudagur 26.mars 2025
Fréttir

Heimir Már tætir RÚV í sig og Sunna Karen svarar – „Þú fékkst upplýsingar um að fréttin færi í loftið klukkan 18“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 24. mars 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Már Pétursson, fyrrverandi fréttamaður og núverandi framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi Flokks fólksins, vandar fréttastofu RÚV ekki kveðjurnar.

Eins og öllum ætti að vera ljóst sagði Ásthildur Lóa Þórsdóttir af sér sem mennta- og barnamálaráðherra í síðustu viku þegar í ljós kom að til stæði að flytja fréttir af ástarsambandi hennar og ungs manns fyrir rúmum 30 árum.

Heimir Már, sem á langan feril að baki sem fjölmiðlamaður, gerir málið upp í pistli sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi og hefur vakið talsverða athygli.

Segir þetta standa eftir

„Skrifaði þetta í athugasemd við færslu á FB þar sem býsnast var yfir því að fólk gerði athugasemdir við vinnubrögð fréttastofu Ríkisútvarpsins ohf og þau réttlætt með aldursmun Ástu Lóu og barnsföður hennar:

Hann var þá líka fullorðinn maður samkvæmt lögum þegar þau sváfu saman. – þau höfðu áður verið vinir innan safnaðar þar sem þau hittust. Það var sem betur fer ekki bannað fyrir 36 árum fremur en nú að vera vinir þótt 6 ár skilji fólk að í aldri,“ segir hann.

Sjá einnig: Sonur Ásthildar Lóu stígur fram:„Kannski verið vert að spyrja hversu margar af þessum 24 klukkustundum hann nýtti til samveru með mér“

Hann segir að þetta standi eftir:

„Fullyrðing um að Ásta hafi verið leiðbeinandi piltsins og þar með í valdastöðu er röng. Fullyrðing um tálmun er röng. Fullyrðing um að pilturinn hafi verið 15 ára þegar samlíf hans og Ástu hófst er röng. Fullyrðing um að um þvingun hafi verið að ræða gagnvart piltinum er röng, að hans sögn sem staðfestir frásögn Ástu.“

Heimir segir að um öll þessi atriði hafi ríkismiðillinn „sem þykist vandur að virðingu sinni“ ekki kært sig um.

„Þegar viðtalið var tekið við Ástu kl rétt rúmlega sex hafði “frétt” án hennar sjónarmiða verið send út í Speglinum kl 6 og fyrir lá klippt sjónvarps “frétt” full af rangfærslum með tilvitnunum í hegningarlög nútímans og refsirammi þeirra laga tíundaður. Laga sem GILTU EKKI ÞÁ í allt öðru samfélagi. Grafík og alvöruþrungin “stand-up” sem tekin voru upp áður en allar ásakanir höfðu verið sannreyndar. Öll “fréttin” án sjónarmiða Ástu,“ segir Heimir Már og bætir svo við:

„Þegar viðtalið við Ástu var loks tekið upp, sem ég var vitni að, vissi fréttamaðurinn síðan ekki hvaðan á hana stóð veðrið þegar hún sat uppi með eina skúbb málsins: Að ráðherrann hafði sagt af sér og ekki hægt að krefja hana afsagnar. Enginn eftirför framundan í marga daga eða vikur … eða hvað???“

Heimir Már endar grein sína á þessum orðum:

„Eftir þetta kom fát á fréttamanninn sem gerði sig líklega til að láta viðtalinu lokið, þannig að minna þurfti hana á að það væri kannski rétt að spyrja frekari spurninga. -Hvers vegna lá „fréttastofu allra landsmanna“ svona mikið á að siðareglur voru látnar fjúka út í veður og vind? Skildi það vera óttinn við að einhver annar yrði fyrri til að skúbba, reiða til höggs …. einhver í hrútakofanum við Hádegismóa kannski? Heimilisfang sem kannski ætti að breyta í Útímóa og Efstaleitinu í Neðstaleiti?“

„Truflandi viðtalið viðstöðulaust“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir, fréttakona sem flutti fyrstu frétt af málinu, svarar Heimi Má en þau unnu saman á fréttastofu Stöðvar 2 fyrir nokkrum árum.

„Ég svaraði þessari athugasemd frá þér áðan og er ljúft og skylt að gera það aftur,” segir Sunna og bætir við:

„Heimir. Þú talar um 36 ár. Fyrir 36 árum var árið 1989. Barnsfaðir ÁLÞ var þá fimmtán ára. Sem passar við frásögn hans um að þeirra samband hafi hafist þá, árið 1989. Þú segir að sex ár skilji þau að í aldri – hið rétta eru sjö ár,“ segir hún og nefnir að eftir standi þetta:

„Leiðbeinandi er orð sem þú notar sjálfur. Barnsfaðirinn fullyrðir hins vegar að hún hafi leitt unglingastarf innan félagsins. Hann segir sjálfur að um tálmun hafi verið að ræða og enginn nema þú talar um þvingun. Hvers vegna ætti ekki að trúa honum, rétt eins og ÁLÞ?“

Sunna segir að RÚV hefði ítrekað samband í von um að fá sjónarmið Ástu Lóu og Heimir viti sjálfur hvernig það gekk.

„Þú fékkst upplýsingar um að fréttin færi í loftið klukkan 18. Það kom fát á einhvern annan en fréttamanninn – og vísa þá til þess hvernig þú gast ekki setið á þér og leyft konunni að tjá sig eins og hún vildi – truflandi viðtalið viðstöðulaust eins og heyrðist líka í öðru viðtali sem birtist á Vísi. Þessi fréttaflutningur varð ekki til þess að hún sagði af sér, enda var engin frétt farin í birtingu þegar ákvörðunin var tekin. Ég ætla ekki að ræða þetta frekar á opinberum vettvangi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Haukur hraunar yfir RÚV og segir sannleiksgildi hafa verið sniðgengið og falsfréttir fluttar – „Jók á tortryggni og trúnaðarbrest“

Haukur hraunar yfir RÚV og segir sannleiksgildi hafa verið sniðgengið og falsfréttir fluttar – „Jók á tortryggni og trúnaðarbrest“
Fréttir
Í gær

Karl Steinar: Lögregla gæti kallað til fleiri hundruð óbreytta Íslendinga ef allt fer í skrúfuna

Karl Steinar: Lögregla gæti kallað til fleiri hundruð óbreytta Íslendinga ef allt fer í skrúfuna