fbpx
Föstudagur 14.mars 2025
Fréttir

„Hvað ætlum við að gera öðruvísi núna svo við höldum ekki áfram að framleiða hættulega afbrotamenn á færibandi?“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 14. mars 2025 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er stutt síðan þjóðfélagið fór á hvolf eftir morðið á Bryndísi Klöru og héldum við þá að við værum komin á endastöðina. En hvað var búið að ganga á þar áður? Jú, við vorum búin að halda stærstu réttarhöld Íslandssögunnar og það þurfti meira segja að færa þau í samkomusal í Grafarholti vegna fjölda þeirra ungu sakborninga sem áttu í hlut eða þetta fræga mál, B5-málið. Þar áður var búin að vera skotárás bæði í Úlfarsárdal og í Grafarvogi, hnífaárásir, ég gæti haldið lengi áfram, en hvað ætlum við að gera öðruvísi núna svo við höldum ekki áfram að framleiða hættulega afbrotamenn á færibandi hér á landi?“

spyr Davíð Bergmann.

Í grein sinni á Vísi segist hann velta fyrir sér skýringunni á fjölda ofbeldisverka í íslensku samfélagi þegar við eigum svo marga sérfræðinga í öllum þessum málaflokkum? 

„Hvort að það sé ekki einmitt skýringin á þessu? Sérfræðivæðing, ofgreiningar, lyfjaát, bómullarvæðing, nefndir og ráð, starfshópar, og aðgerðarleysi?“ 

Davíð segir að ef staðan er skoðuð í ljósi sögunnar kæmi það honum ekki á óvart að þessi þróun sem á sér stað núna, hvort heldur hjá grunnskólabörnum eða sjálfráða einstaklingum sem fremja jafn hræðilegan glæp eins og að deyða mann, geti verið afleiðing af ofangreindu.

„Við sem samfélag þurfum að horfa í okkar eigin barm því mörg af þessum ofbeldismálum sem hafa sett að okkur hroll í gegnum árin eru einstaklingar sem hafa verið í kerfinu frá blautu barnsbeini. Það vantaði ekki sérfræðingana sem voru í kringum þá og töluðu við þá yfir skrifborð, það veit ég fyrir víst því ég hef starfað á þessum vettvangi síðan 1994. Það getur ekki verið tilviljun að það gerist ítrekað að ég þekki ofbeldismennina þegar þeir eru orðnir fullorðnir, sem eru að setja að okkur hroll hérna úti í samfélaginu með sínum ofbeldisverkum. Getur það verið vegna þess að þeir voru í kerfinu þegar þeir voru börn, sem hafa jafnvel komist upp með að sprengja hvert úrræðið á fætur öðru, og fyrst og fremst vegna getuleysis að taka á þessum einstaklingum og það úrræði var alltof veikt.“

Youth offending team er sérsniðið að íslenskum veruleika

Davíð segir að ekki þurfi lagabreytingar til, hægt sé að dæma einstaklinga til fræðslu, meðferðar og skilyrða dóma með ýmsu móti sem allt rúmist innan 57. almennra hegningarlaga. Einnig sé hægt að  horfa til Bretlands og taka upp „youth offending team“ sem Davíð segir myndi vera sérsniðið fyrir íslenskan veruleika.

„Það eina sem þarf er að fara út fyrir kassann og prufa og koma með nýja nálgun því hin stefnan sem við höfum verið að taka er orðin gjaldþrota. Svo annað að standa við að byggja sérhæft meðferðarheimili fyrir börn í vanda og fækka skrifborðum og fá sérhæfða einstaklinga sem hafa verið báðum megin við borðið í vinnu með þessa einstaklinga.“

Davíð segir það ljóst að við ætlum að halda sömu aðferð áfram í stað þess að breyta um vinnubrögð.

„Við ætlum að sigla þessu risastóra olíuskipi með laskaða skrúfu stefnulaust, en ekki að kafa niður af henni og laga og snúa stefnunni í annað og taka á þessum málaflokki með annarri nálgun eins og til að mynda með hugmyndafræðinni youth offending team eða PUK Politest ungdomsklub. Nei við ætlum að halda áfram að sérfræðivæða með fólki sem hefur aldrei stigið fæti inn í heim þessara barna, það sem það hefur gert er að lesa bækur í háskóla og hlusta á aðra sérfræðinga og fjölga skrifborðum í fílabeinsturnum. Síðan hefst sami söngurinn: samþætting aðila, það verða allir að koma að þessu, úr verður nefnd eða ráð og hvað svo?“

Gluggalaus fangaklefi

Davíð bendir á að það sé varla starfrækt eitt meðferðarheimili hér á landi fyrir börn í vanda og við setjum börn í gluggalausan fangaklefa í Hafnarfirði þegar við þurfum að neyðarvista. Þegar meðferðarheimilin voru sem flest voru heimilin níu og íbúar landsins þá um 100 þúsund færri en í dag.

„Ég fer ekki ofan af því að þeir sem bera ábyrgð og stýra þessum málaflokki séu vanhæfir því bara ég, sem ólærður, sé það í hendi minni að miðað við þá fjölgun sem hefur átt sér stað bara á síðustu 20 árum ættum við ekki að hafa svona fá meðferðarheimili fyrir ungmenni í vanda,“ segir Davíð.

„Sjálfur var ég olnbogabarn í skólakerfinu og var sendur í öll landshorn af því að ég gat ekki lesið mér til gagns sem barn. Ég sat fyrir framan alls konar sérfræðinga sem ég man ekki eitt nafn á í dag. En ég man eftir Páli gamla sem ég var sendur til sveitar sem sá mig og heyrði og kenndi mér til verka og ég gleymi aldrei orðum hans sem voru þessi: „Lífið býður ekki upp á neinn afslátt, það er á fullu verði, þú getur ekki farið í gegnum það öðruvísi“.

Þetta er eitthvað sem við ættum að fara að skoða þegar við erum að vinna með þessa einstaklinga og hætta að sjúkdómsmerkimiðavæða allt og gefa afslætti heldur fræða, ekki með því að stilla þeim á bak við skrifborð heldur með því að kenna „learning by doing“.“

Rugl að byggja fangelsi fyrir 14 milljarða

Davíð segir það rugl að ætla að byggja 14 milljarða fangelsi, við  eigum ekki að hugsa um það, heldur einbeita okkur að ungum afbrotamönnum, „taka okkur Dani til fyrirmyndar þar (PUK. politest ungdomsklub.) þar sem lögreglumenn taka að sér drengina eins og í Breiðholti í tilsjón. Ég fer ekki ofan af því að það ætti að innleiða það í lögreglunámið að ef þú ætlar að útskrifast sem lögreglumaður áttu að taka að þér svona drengi eða stúlkur eins og í Neðra-Breiðholti í tilsjón því ef það er ekki forvörn þá veit ég ekki hvað forvörn er.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Boltinn er hjá Rússum – Er líklegt að þeir samþykki vopnahlé?

Boltinn er hjá Rússum – Er líklegt að þeir samþykki vopnahlé?
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bjargað eftir nokkurra daga svaðilför í Loðmundarfirði – Myndir og myndband

Bjargað eftir nokkurra daga svaðilför í Loðmundarfirði – Myndir og myndband
Fréttir
Í gær

Pipar\TBWA valin auglýsingastofa ársins annað árið í röð

Pipar\TBWA valin auglýsingastofa ársins annað árið í röð
Fréttir
Í gær

Ásthildur Lóa: „Við erum löngu hætt að gera ráð fyrir réttlæti hjá íslenskum dómstólum”

Ásthildur Lóa: „Við erum löngu hætt að gera ráð fyrir réttlæti hjá íslenskum dómstólum”