Þegar Elon Musk og Marco Rubio, utanríkisráðherra, lenti saman nýlega á ríkisstjórnarfundi, var það fyrsta merkið um að hveitibrauðsdögum ríkisstjórnar Trump sé að ljúka.
Elon Musk, sem er ríkasti maður heims og sá sem gaf mest í kosningasjóð Trump, hefur með vélsagaraðferðum sínum valdið milljónum opinberra starfsmanni áfalli og verið eitt helsta fréttaefnið á fyrstu vikum ríkisstjórnar Trump. En nú er Musk farinn að mæta vaxandi mótstöðu frá öðrum í framvarðarsveit Trump og ekki síst frá aðalhugmyndafræðingi Trump á fyrra kjörtímabili hans, Steve Bannon.
New York Times segir að Musk og Rubio hafi lent harkalega saman á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku og hafi Musk sagt Rubio „vera góðan í sjónvarpi en ekki til margs annars brúklegur“ og alls ekki til að stýra ráðuneyti.
Musk gagnrýndi Rubio fyrir að hafa ekki rekið neinn úr utanríkisráðuneytinu og er Rubio þá sagður hafa sprungið og gert atlögu að Musk og að hafa sakað hann um lygar og sagði að 1.500 starfsmenn utanríkisráðuneytisins hefðu fengið boð um að láta sjálfviljugir af störfum.
Rubio var reiður fyrir vegna þess að Musk hafði upp á sitt einsdæmi lagt USAID, stofnun sem sá um þróunaraðstoð, niður en hún átti að lúta stjórn Rubio.
Trump er sagður hafa fylgst með deilunum eins og tennisleik en að lokum tók hann orðið, hrósaði Rubio og bað viðstadda um að vinna saman. Hann lagði áherslu á að það séu ráðherrarnir sem taka ákvörðun um að reka starfsfólk og að DOGE-nefnd Musk sé til ráðgjafar. Hann sagði einnig að niðurskurð og brottrekstra ætti framvegis að framkvæma með fíngerðum hníf en ekki öxi.
Þetta var fyrsta tilraun Trump til að reyna að koma böndum á Musk en brottrekstur tuga þúsunda opinberra starfsmanna, án fyrirvara, hafa haft fjölda dómsmála í för með sér, kvartanir frá þingmönnum Repúblikana og reiði meðal ráðherra.
Þetta var langþráð uppreist fyrir Rubio. Margir þingmenn Demókrata studdu tilnefningu hans sem ráðherra í von um að hann yrði einn af fáum „fullorðnum“ í ríkisstjórninni sem gætu haldið aftur af Trump. Bandarískir fjölmiðlar eru nú farnir að veðja um hversu lengi Rubio mun halda út í ríkisstjórninni því hann virðist hafa verið settur til hliðar hvað varðar málefni Úkraínu og Miðausturlanda.
Í kjölfar rifrildis Musk og Rubio sagði Steve Bannon að Musk sé að verða Trump fjötur um fót.
Þetta er svo sem ekki í fyrsta sinn sem Bannon og Musk lendir saman. Bannon hefur kallað Musk sníkjudýr, ólöglegan innflytjanda og mjög vondan mann.