fbpx
Fimmtudagur 10.apríl 2025
Fréttir

Faðir stúlku í Breiðholtsskóla óttast að stórslys sé í uppsiglingu – Mættu með öxi heim til nemanda

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 20. febrúar 2025 10:00

Mynd/Skjáskot Ísland í dag

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nei, þetta er ekkert venjulegt eineltismál. Ofbeldið sem hefur átt sér stað er bara grafalvarlegt, ég myndi bara segja morðtilraunir. Það er bara þannig. Ég ætla ekkert að fara nánar í það hér. Lýsingarnar eru þannig að börn hefðu getað dáið.“

Þetta sagði Hermann Austmar, faðir stúlku í 7. bekk Breiðholtsskóla, í viðtali við Sindra Sindrason í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Töluvert hefur verið fjallað um ógnarástand í Breiðholtsskóla vegna hóps drengja af erlendum uppruna sem beitt hafa samnemendur sína grófu líkamlegu og andlegu ofbeldi. Fá úrræði virðast vera fyrir hendi til að leysa vandann og kveðst Hermann margoft hafa íhugað að flytja úr hverfinu.

Sjá einnig: Ógnarástand í Breiðholtsskóla:„Það eina sem dóttir mín er að læra núna er að vera þolandi ofbeldis“

Þori ekki að taka á vandanum vegna uppruna drengjanna

Í viðtalinu kom fram að Hermann vilji tala um hlutina án þess að vera kallaður rasisti. Hann telur að þeir sem eigi að geta tekið á vandanum þori því ekki vegna uppruna drengjanna og fjölskyldna þeirra.

„Það eru mörg börn sem eiga erlenda foreldra í skólanum, hátt hlutfall, það getur alveg verið að það sé menningartengt en ég held að í þessu tilfelli skipti það bara engu máli,“ sagði hann og bætti við að allt séu þetta börn sem búa á Íslandi.

„Samkvæmt lögum um grunnskóla á að tryggja öllum börnum öryggi, við erum með barnaverndarlög og þau eiga að vernda börn. Það snýst ekki um hvort þau eigi íslenska foreldra eða erlenda foreldra. Þau eru í skóla á íslandi.“

Sjá einnig: „Það er hörmu­legt til þess að vita að þetta sé búið að ganga svona í mörg ár“

„Óttast stórslys“

Hermann sagði að illa hefði gengið að fá þessa foreldra til að vera virka og illa gengið að ná til þeirra.

„Þetta er ekkert leyndarmál, þessi börn eru bara eftirlitslaus í Breiðholti. Það eiginlega bara hræðast þau allir. Við vitum að þegar börn eru að haga sér svona þá er gríðarlegur vandi á bak við,“ sagði Hermann og bætti við að drengirnir hefðu ekki bara verið til vandræða í Bökkunum og í skólanum sjálfum heldur einnig í Seljahverfi þar sem dæmi séu um ógnandi hegðun þeirra í garð eldri krakka.

„Þetta er bara gríðarlega alvarlegt og ein af ástæðunum fyrir því að ég er að tala um þetta er að ég held að það sé stórslys í uppsiglingu, að minnsta kosti í Breiðholti.“

Hermann segist ekki alveg gera sér grein fyrir því hversu stór hópurinn er en hann kvaðst þekkja dæmi um að drengir hafi mætt heim til nemenda í Breiðholtsskóla.

„Þeir mættu með öxi heim til hans. Mamma hans hringdi á lögregluna og barnavernd og allt saman. Og ég veit um annað foreldri sem hringdi úr Seljahverfinu hringdi á lögreglu og barnavernd af því að þeir voru að ógna syni hennar sem er í 10. bekk með hníf eftir einhverja samkomu í Efra-Breiðholti.“

Hermann ítrekaði að Ísland eigi að taka þátt í alþjóðsamfélaginu og koma hælisleitendum og fólki í vanda til aðstoðar.

„Þegar við erum að hleypa fólki til Íslands þá verðum við að skilja samhengi þess hvaðan þau eru að koma. Eins og þetta er núna erum við að búa til gríðarleg vandamál inn í framtíðina með því að aðstoða ekki þessi börn og foreldra þeirra, tryggja að þau verði hluti af samfélaginu.“

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Hermann á vef Vísis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Grjót á Vesturlandi gefur vísbendingar um fall Rómarveldis – „Við vissum að þessir steinar væru eitthvað óvenjulegir“

Grjót á Vesturlandi gefur vísbendingar um fall Rómarveldis – „Við vissum að þessir steinar væru eitthvað óvenjulegir“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sagði lögmann ranglega hafa sagt hann vera samkynhneigðan

Sagði lögmann ranglega hafa sagt hann vera samkynhneigðan
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bláskógabyggð sögð skaðabótaskyld

Bláskógabyggð sögð skaðabótaskyld
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Kristinn svarar pistli blaðamanns: „Ég var að biðja þessar ungu konur að færa fórn“

Kristinn svarar pistli blaðamanns: „Ég var að biðja þessar ungu konur að færa fórn“
Fréttir
Í gær

Vendingar í klósettmáli Ringo Starr – „Þættinum hafa borist nýjar ábendingar“

Vendingar í klósettmáli Ringo Starr – „Þættinum hafa borist nýjar ábendingar“
Fréttir
Í gær

„Besta vika lífs míns varð allt í einu ennþá betri“

„Besta vika lífs míns varð allt í einu ennþá betri“
Fréttir
Í gær

Láta Friðrik Þór heyra það og segja hann hafa gengið of langt

Láta Friðrik Þór heyra það og segja hann hafa gengið of langt
Fréttir
Í gær

Segjast þurfa meira fjármagn til að styrkja stöðu neytenda – Misjafnar skoðanir meðal atvinnurekenda

Segjast þurfa meira fjármagn til að styrkja stöðu neytenda – Misjafnar skoðanir meðal atvinnurekenda