fbpx
Föstudagur 21.febrúar 2025
Fréttir

Blöskra hegðun ferðamanna á Íslandi – „Á göngustíg í Reykjadal sá ég haug af mannaskít“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 19. febrúar 2025 11:00

Mýmörg dæmi eru um að ferðamenn hegði sér illa. Myndir/Reddit

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkuð hefur borið á því að ferðamenn virði ekki reglur á vinsælum ferðamannastöðum. Fari út fyrir göngustíga og inn á gróðurverndarsvæði og jafn vel hættulega staði. Er þetta Íslendingum jafnt sem öðrum ferðamönnum til mikils ama.

Borið hefur á því á samfélagsmiðlasíðum fyrir ferðamenn að birtar séu myndir af ferðamönnum sem fara yfir strikið, bókstaflega. Það er fara út af merktum gönguleiðum á vinsælum ferðamannastöðum. Meðal annars til þess að láta mynda sig.

Hefur verið fjallað um þetta í erlendum fjölmiðlum, meðal annars miðlinum The Cool Down.

„Þegar þú ert að ferðast og veltir fyrir þér: „Ætti ég að gera þetta?“ og myndir svo spyrja þig hvort það hefði neikvæð áhrif ef næstu þúsund manns myndu gera það sama og svarið er já þá skaltu ekki gera það,“ sagði einn ferðamaður á samfélagsmiðlinum Reddit.

Óvirðing gagnvart náttúru og munum

Hafa ferðamenn meðal annars verið myndaðir við að klifra stuðlaberg við Reynisfjöru og fara skuggalega nálægt klettabrún við Stuðlagil. Þetta eru báðir staðir þar sem hafa orðið banaslys á undanförnum árum, síðast í október á síðasta ári þegar kona á fertugsaldri lést í Jökulsá í Stuðlagili. Nokkur banaslys hafa orðið í Reynisfjöru þegar aldan hefur hrifsað fólk á haf út.

Óvirðingin á ekki aðeins við um náttúruperlur því eins og DV fjallaði um í janúar þá príluðu og hoppuðu kínverskir ferðamenn á Douglas R4D-S flugvélarflakinu sem stendur á Eyvindarholti undir Eyjafjöllum. Þar eru skýrar merkingar um að fólk sýni flakinu virðingu og fari ekki inn í það. Einnig hunsuðu ferðamennirnir aðra ferðamenn sem bentu þeim á reglurnar.

Ný týpa af ferðamanni

„Mér finnst að það ætti að ræða við svona fólk. Spyrja það beint út: Af hverju heldur þú að þú sért betri en aðrir hérna?“ sagði einn ferðamaður í umræðum á Reddit um myndir af manni sem hafði farið hættulega nálægt  brúninni við Stuðlagil.

Stórhættuleg hegðun við Stuðlagil. Mynd/Reddit

„Það er oft reynt að segja þeim að þetta sé bannað en það er bara hunsað,“ svarar annar.

„Þetta er ástæðan fyrir því að Japanir eru farnir að banna ferðamenn á sumum stöðum og setja upp veggi á sumum ferðamannastöðum. Hversu erfitt er það fyrir fólk að fara eftir þeim reglum sem eru settar?“ spyr einn.

Sjá einnig:

Kínverskir ferðamenn sakaðir um óvirðingu – „Ég er ekkert hrifinn af því að fólk sé að príla upp á flakið“

Einn nefnir að samfélagsmiðlar hafi skapað þessa týpu af ferðamanni. Það er ókurteist fólk, sem virði ekki reglurnar á þeim stöðum sem það heimsækir og sé sama um náttúruna. Það eina sem skipti máli sé að ná góðum myndum til að birta á samfélagsmiðlareikningum sínum.

Sýndu puttann

Einnig eru dæmi um að þessir ferðamenn sýni öðrum sem reyni að benda þeim á reglurnar fullkominn dónaskap.

Kínverskir ferðamenn sýndu flakinu óvirðingu. Myndir/Reddit

„Ég sá mann sem kallaði á hóp af stúlkum í Reynisfjöru sem fóru inn fyrir girt svæði. Þær sendu honum bara puttann,“ segir ein kona sem var afskaplega hneyksluð að fylgjast með öðrum ferðamönnum á Íslandi. „Fólk er að koma til að heimsækja heimaland annars fólks og kemur fram við það af fullkominni óvirðingu. Bréfþurrkur út um allt, fólk traðkandi á viðkvæmu landslagi, hundsandi skilti og gangandi yfir svæði sem verið er að byggja upp. Á göngustíg í Reykjadal sá ég haug af mannaskít.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Jón Steinar um að dreifa slúðri um Flokk fólksins – „Hefur þú enga sómatilfinningu herra dómari?“

Sakar Jón Steinar um að dreifa slúðri um Flokk fólksins – „Hefur þú enga sómatilfinningu herra dómari?“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Fjörugar athugasemdir eftir kvörtun miðborgarbúa vegna hávaða, hrópa og úrgangslosunar – „Costco er bæði með partýbleyjur og poka“

Fjörugar athugasemdir eftir kvörtun miðborgarbúa vegna hávaða, hrópa og úrgangslosunar – „Costco er bæði með partýbleyjur og poka“
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur: „Af hverju taka stjórnvöld ekki á þessari græðgi bankanna?“

Vilhjálmur: „Af hverju taka stjórnvöld ekki á þessari græðgi bankanna?“
Fréttir
Í gær

Gagnrýnir „dapurleg“ ummæli Jóns Péturs: Sagðist ætla að setja húsið á sölu ef Heiða Björg yrði borgarstjóri

Gagnrýnir „dapurleg“ ummæli Jóns Péturs: Sagðist ætla að setja húsið á sölu ef Heiða Björg yrði borgarstjóri