Styrkhafar í Uppsprettunni ásamt starfsfólki Haga og dótturfélaga
Mynd: Aðsend
Níu frumkvöðlaverkefni hafa hlotið styrk úr Uppsprettunni, nýsköpunarsjóði Haga. Uppsprettan styður frumkvöðla við þróun og nýsköpun í íslenskri matvælaframleiðslu. Sjóðurinn leggur sérstaka áherslu á að verkefnin sem hljóta styrkveitingu taki tillit til sjálfbærni og styðji innlenda framleiðslu.
Þetta er í fjórða sinn sem veittir eru styrkir úr Uppsprettunni, en alls hafa 41 verkefni hlotið styrk úr sjóðnum frá stofnun hans árið 2021. Auk fjárhagslegs stuðnings fá styrkhafar ráðgjöf og aðstoð við að koma afurðum sínum í matvöruverslanir.
Finnur Oddson og Anton Birkir Sigfússon hjá Högum kynna styrkhafa í Uppsprettunni. Mynd: Aðsend
Alls bárust tugir umsókna um styrk í sjóðinn og valdi matsnefnd níu verkefni til styrkveitingar. Afhending á styrkjum fór fram á sérstökum viðburði í höfuðstöðvum Banana, dótturfélags Haga.
Styrkhafar Uppsprettunnar 2025 eru:
Tropic – Framleiðsla og markaðssetning á gómsætum eftirréttum úr plöntufæði. Kristín Amy, sem fer fyrir verkefninu, er nú þegar með ýmsar heilsuvörur til sölu í verslunum Hagkaups undir vörumerkinu Tropic.
Sea Growth – Undirbúningur á framleiðslu hágæða sjávarfangs beint úr fiskfrumum með sjálfbærum aðferðum. Aðferðin byggir á því að einangra stofnfrumur úr hrogni og rækta þær upp í vöðva- og fitufrumur. Að verkefninu standa Birgitta Ásgrímsdóttir og Alexander Schepsky.
PUFF – Framleiðsla og markaðssetning á loftpoppuðu poppkorni með fjölbreyttum og frumlegum bragðtegundum. Stofnendur PUFF eru þeir Arnar Valgeirsson, Árni Hreiðarsson og Eiður Kristjánsson.
Ísponica – Lóðrétt grænmetisræktun (e. vertical farm) á Hofsósi þar sem ræktaðar verða sprettur, radísur, baunaspírur og sveppir. Frumkvöðullinn á bak við verkefnið er Amber Monroe.
Feed the Viking – Framleiðsla og markaðssetning á girnilegum íslenskum grýtum úr frostþurrkuðu hráefni. Feed the Viking, sem stofnað var af Friðriki Guðjónssyni, er þegar í dag að bjóða upp á fjölbreytt úrval af frostþurrkuðum vörum í verslunum Hagkaups.
Villt að vestan – Frekari vöruþróun á úrvals sósu- og súpublöndum úr íslenskum villisveppum. Verkefnið er í höndum Sæbjargar Freyju Gísladóttur og Eyvindar Atla Gíslasonar frá Flateyri. Þau hafa áður hlotið styrk úr Uppsprettunni og fóru inn með vörur sínar í Hagkaup skömmu fyrir síðustu jól.
Brúnastaðir – Fjölskyldan á Brúnastöðum í Skagafirði fær styrk til framleiðslu og þroskunar á hágæða geitaosti. Hluti af þroskunarferlinu felst í að láta ostinn liggja í bjórbaði.
HD Grill – Framleiðsla og markaðssetning á tólgi og soði úr vannýttum dýraafurðum. Félagarnir Halldór Sverrisson og Davíð Clausen standa að verkefninu.
Re Argentina – Framleiðsla og markaðssetning á ljúffengum eftirréttum að argentínskum sið. Stofnandi verkefnisins er Carla Ines Valvo.