Sextug kona kona sem hafði verið í dái í 33 ár lést fyrir skemmstu í Ítalíu. Hún féll í dá eftir bílslys árið 1992 en fékk aldrei að vita að dóttir hennar lést í slysinu.
Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu.
Konan hét Luigina Brustolin og var aðeins 27 ára gömul þegar slysið varð, þann 23. maí árið 1992 á vegi í Pederobba nálægt Treviso í norðausturhluta Ítalíu. Með henni í bílnum var eins árs gömul dóttir hennar, Sara.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað gerðist en Wolksvagen Golf bíll Luiginu lenti í árekstri við Nissan Primera bíl sem 46 ára gamall maður ók. Eitt vitni er talið hafa séð áreksturinn en fannst aldrei.
Sara litla var á gjörgæsludeild í 35 daga áður en hún lést 29. júní, skömmu fyrir tveggja ára afmælisdaginn sinn. Luigina féll hins vegar í dá eftir slysið og ekki var hægt að ná henni úr því.
Eiginmaður Luiginu, Franco Reghin þá 26 ára gamall, var niðurbrotinn maður eftir slysið. Hann sat við hlið dóttur sinnar hvern dag á gjörgæsludeildinni.
„Þennan morgun tapaði ég öllu og líf mitt gjörbreyttist,“ sagði hann við fjölmiðla á sínum tíma við blaðið Il Gazzettino. „Ég svaf á gjörgæslunni þegar þau leyfðu mér það. Ég var með henni en mér var strax sagt að hún myndi ekki hafa það af. Sara var meðvituð um allt. Ég man eftir táum hennar og minna líka. Hún hefði orðið tveggja ára þann 16. júlí en jarðarförin hennar fór fram þann dag.“
Alls var Luigina í dái í 33 ár eftir slysið örlagaríka. Hún sýndi sjaldan nokkur viðbrögð við áreiti. En það kom fyrir að hún opnaði og lokaði augunum.
Hún dvaldi heima hjá sér en þann 1. febrúar hafði hún verið flutt á sjúkrahús vegna versnandi heilsu. Hún lést þann 7. febrúar síðastliðinn. Dánarorsökin var hjartaáfall. Jarðarförin var haldin á miðvikudag, 12. febrúar í bænum Colbertaldo.
Franco fékk á sínum tíma skilnað frá Luiginu, giftist aftur og eignaðist tvö börn. Þau eru í dag 25 og 23 ára.
„Ég hóf nýtt líf og það voru ekki allir sáttir við það,“ sagði Franco í viðtali eftir andlát Luiginu. „En ég yfirgaf Luiginu aldrei. Á laugardögum og sunnudögum kom ég með hana heim til mín og börnin mín hittu hana. Þau kölluðu hana Luiginu frænku. Ég heimsótti hana síðast fyrir mánuði síðan.“