fbpx
Þriðjudagur 11.febrúar 2025
Fréttir

„Að sleppa frá ofbeldi ætti að marka upphaf nýs lífs, ekki nýja martröð“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 11. febrúar 2025 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Að sleppa frá ofbeldi ætti að marka upphaf nýs lífs, ekki nýja martröð. Það er á ábyrgð samfélagsins að tryggja að þolendur fái raunverulegt frelsi, ekki bara nýtt form kúgunar.

Þegar kona sleppur úr ofbeldissambandi er það þó oft aðeins upphaf nýrrar baráttu, því ofbeldismaðurinn notar gjarnan lagalegt og kerfisbundið vald til að halda áfram ógnarstjórninni,“

segir Líf Steinunn Lárusdóttir í grein sinni á Vísi.

Líf sem sjálf er fórnarlamb heimilisofbeldis segir heimilisofbeldi ekki aðeins vera líkamlegt ofbeldi, heldur einnig andlegt, tilfinningalegt og fjárhagslegt. Afleiðingar þess eru djúpstæðar og geta haft langvarandi áhrif á þolendur, sérstaklega börn sem alast upp við ótta og óöryggi. 

„Þolendur heimilisofbeldis glíma við fjölda afleiðinga, bæði líkamlega og andlega. Þeir geta þróað með sér kvíða, þunglyndi, áfallastreituröskun og jafnvel sjálfsvígshugsanir. Börn sem verða vitni að ofbeldi eru í aukinni hættu á að þróa með sér hegðunarvanda, námsörðugleika og að endurtaka mynstur ofbeldis í sínum samböndum síðar á lífsleiðinni.

En þó að konunni takist að sleppa frá ofbeldismanninum, er það ekki alltaf endirinn á ofbeldinu. Þvert á móti getur ofbeldismaðurinn haldið áfram að beita konuna ofbeldi, en nú í gegnum kerfið.“

Kerfisbundnar ofsóknir og valdbeiting eftir flótta

Líf segir margar konur sem flýja ofbeldissamband upplifa að ofbeldið heldur áfram með nýjum hætti. Tekur hún dæmi um fjórar aðferðir sem ofbeldismenn beita oft til að viðhalda stjórn sinni á fórnarlambi sínu:

1.Dómskerfið og forræðisdeilur

Ofbeldismenn nota oft forræðis- og umgengnismál til að halda áfram að stjórna fyrrverandi maka sínum. Þeir draga konur í langdregnar og kostnaðarsamar forræðisdeilur. Markmiðið er ekki velferð barnanna heldur að refsa konunni fyrir að hafa farið. Þeir krefjast jafnvel umgengni eingöngu til að viðhalda valdi yfir henni og neyða hana í áframhaldandi samskipti. Í sumum tilfellum veit ofbeldismaðurinn það að börnin eru það sem konan lifir fyrir og að ná börnunum af henni væri hin fullkomna hefnd. Því miður virðist þetta ekki vera af væntumþyggju föður til barnanna í öllum tilfellum. Algengt er að ofbeldismaðurinn sé búinn að hóta þessu áður en konan nær að flýja frá honum.

2.Fjárhagsleg stjórnun

Ef ofbeldismaðurinn hafði yfirráð yfir fjárhagnum í sambandinu, getur hann haldið því áfram eftir sambandsslit með því að draga skilnaðarmál á langinn, neita að greiða meðlag eða halda eignum frá konunni.

3.Ósannindi og ásakanir

Margar konur lenda í því að ofbeldismaðurinn snýr sannleikanum gegn þeim og gerir sig að „fórnarlambinu“. Hann getur reynt að fá hana úrskurðaða geðveika með aðstoð matsmanns foreldrahæfnis, sem notar meðal annars úrelt sálfræðipróf, sem er vitað að kemur mjög illa út fyrir mæður sem hafa verið beittar ofbeldi og eru einnig með ADHD. Þetta gera ofbeldis mennirnir til að draga úr trúverðugleika konunnar í forræðismálum. Í sumum tilvikum tekst þeim að sannfæra samfélagið eða jafnvel kerfið um að það sé konan sem sé vandamálið.

4.Lögreglan og stofnanir

Þrátt fyrir góðan ásetning getur kerfið stundum ómeðvitað unnið með ofbeldismanninum. Ef lögreglan eða barnavernd lítur á ágreining sem „foreldra deilur“ frekar en áframhaldandi ofbeldi, getur það veikt stöðu konunnar. Jafnvel dómstólar geta litið á hana sem „óvinveitta foreldrið“ ef hún reynir að vernda börnin gegn ofbeldi föður.

Viðurkenna þarf ofbeldi til að uppræta það

Líf segir að kerfið þurfi að viðurkenna hvernig ofbeldi getur haldið áfram í gegnum lög og stofnanir, svo hægt sé að vernda þolendur.

 Það sem þurfi til sé meðal annars:

  • Betri fræðslu fyrir dómara, lögreglu og barnavernd þannig að þeir greini muninn á raunverulegum foreldradeilum og áframhaldandi heimilisofbeldi.
  • Skýrar reglur sem tryggja að ofbeldismenn geti ekki misnotað dómstóla og barnaverndarkerfið til að viðhalda stjórn. Einnig að dómstólar fari eftir þeim barnaverndarlögum sem til eru og að dómarar og aðrir embættismenn vinni vinnuna sína og lesi öll þau gögn sem lögð eru fram.
  • Aukna fjárhagslega aðstoð við konur sem flýja, svo þær geti staðið á eigin fótum án þess að vera háðar gerandanum.

Greinina má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Stefán Einar jós skömmum yfir kennara en var tekinn á teppið – „Eins og ofvirkur illa uppalinn skólastrákur“

Stefán Einar jós skömmum yfir kennara en var tekinn á teppið – „Eins og ofvirkur illa uppalinn skólastrákur“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Trump vill fá úkraínskar náttúruauðlindir í staðinn fyrir hernaðaraðstoð – Verður að hafa hraðar hendur

Trump vill fá úkraínskar náttúruauðlindir í staðinn fyrir hernaðaraðstoð – Verður að hafa hraðar hendur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þess vegna ættirðu alls ekki að naga neglurnar – Sjáðu myndbandið

Þess vegna ættirðu alls ekki að naga neglurnar – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur segir Stefán Einar hafa komið í veg fyrir meirihluta Sjálfstæðisflokks í borginni – Stefán svarar fullum hálsi

Össur segir Stefán Einar hafa komið í veg fyrir meirihluta Sjálfstæðisflokks í borginni – Stefán svarar fullum hálsi