Swift var mætt á Ceasars Superdome-leikvanginn í New Orleans í gærkvöldi til að horfa á sinn heittelskaða, Travis Kelce, sem spilar með Kansas City Chiefs, etja kappi við Philadelphia Eagles. Eagles vann öruggan sigur, 40-22, og sá lið Chiefs aldrei til sólar.
Þegar myndavélarnar á vellinum beindust að Swift bauluðu áhorfendur á hana og virtist það koma henni í opna skjöldu.
Sjá einnig: Donald Trump óvæginn:„Sú eina sem átti verra kvöld en Chiefs var Taylor Swift“
Mail Online fékk varalesarann NJ Hickling til að rýna í hvað Swift sagði þegar baulið tók að heyrast: „Aww what, what‘s going on?“ mun Swift hafa sagt, eða einfaldlega: „Hvað er í gangi?“
Eins og við greindum frá í morgun sá Donald Trump ástæðu til að skjóta á Swift, en forsetanum var ákaft fagnað þegar myndavélarnar beindust að honum.
„Sú eina sem átti verra kvöld en Kansas City Chiefs var Taylor Swift. Hún var PÚUÐ út af vellinum. MAGA er miskunnarlaust,“ sagði hann á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, og vísaði í einkennisorð sín MAGA, eða Make America Great Again.