fbpx
Mánudagur 10.febrúar 2025
Fréttir

„Mannslíf eru dýrmætari en tré!“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 9. febrúar 2025 14:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða, spyr hvort það sé í raun og veru svo að tré í Öskjuhlíð fái að njóta vafans umfram veikra einstaklinga frá landsbyggðinni. Það geti ekki og megi ekki vera svo og stjórnvöld þurfi að grípa inn í stöðuna sem upp er komin með Reykjavíkurflugvöll til að tryggja að mannslíf séu metin verðmætari en tré.

Hrefna skrifar grein um málið sem birtist hjá Vísi þar sem hún minnir á þá staðreynd að um 50 einstaklingar á Austurlandi greinast með krabbamein á hverju ári. Flestir þurfi að sækja meðferð við meininu til höfuðborgarinnar og treysta því á flugsamgöngur. Um 1000 sjúklingar séu fluttir árlega með sjúkraflugi og þar af 650 til Reykjavíkur. Þar sé oft um að ræða sjúklinga sem eru að leita sér bráðaþjónustu, þar með talið vegna heilablóðfalla, kransæðaþrenginga og háorkuáverka.

„Erum við í alvörunni á þeim stað á Íslandi árið 2025 að tré í Öskjuhlíðinni fá að storka örlögum upp á líf og dauða hjá bráðveikum einstaklingum af landsbyggðinni?

Nú er búið að loka austur-vestur flugbraut Reykjavíkurflugvallar og er nú einungis ein flugbraut í notkun. Þessi tilskipun Samgöngustofu til ISAVIA stendur þar til 5.maí en verður framlengd ef Reykjavíkurborg hefur ekki brugðist við á þeim tíma, til þessa að tryggja flugöryggi.

Samkvæmt tilkynningu frá Miðstöð sjúkraflugs á Íslandi segir að takmörkun á umferð um Reykjavíkurflugvöll geta dregið úr lífslíkum þeirra sem flutt eru með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Árlega eru um 1000 sjúklingar fluttir með sjúkraflugi í flugvélum og um 650 af þeim eru fluttir til Reykjavíkur. Í tæplega helmingi tilfella er um að ræða sjúklinga sem þurfa nauðsynlega að komast í bráðaþjónustu á Landspítala Háskólasjúkrahúsi og þar með talið sjúklingar sem þurfa að komast í tímaháð inngrip vegna bráðra kransæðaþrenginga, heilablóðfalla og háorkuáverka, svo eitthvað sé nefnt.“ 

Ítrekað sé talað um jöfnuð á Íslandi þar með talið hvað varðar aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Hér sé um að ræða ójöfnuð upp á líf eða dauða fyrir íbúa landsbyggðarinnar.

„Fólk stoppar stutt á sjúkrahúsi vegna meðferða og fer því heim fljótt, en það er fátt betra en að geta verið heima við á milli meðferða ef heilsan leyfir. En það er samt háð því að geta treyst á flugsamgöngur ef eitthvað kemur upp á.

Við treystum og skorum á stjórnvöld að grípa hér inn í og flýta fyrir þessari framkvæmd í Öskjuhlíðinni og að allir forgangsraði rétt þar sem mannslíf eru dýrmætari en tré!“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Ógnarástand í Breiðholtsskóla: „Það eina sem dóttir mín er að læra núna er að vera þolandi ofbeldis“

Ógnarástand í Breiðholtsskóla: „Það eina sem dóttir mín er að læra núna er að vera þolandi ofbeldis“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fyrrum þingmaður vill leiða Siðmennt – „Trúfrelsið er lítils virði án tjáningarfrelsisins“

Fyrrum þingmaður vill leiða Siðmennt – „Trúfrelsið er lítils virði án tjáningarfrelsisins“
Fréttir
Í gær

Fjögurra barna móðir meðal þeirra sem myrt voru í Örebro – „Hún vildi hjálpa öllum öðrum“

Fjögurra barna móðir meðal þeirra sem myrt voru í Örebro – „Hún vildi hjálpa öllum öðrum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Píratar bjóða upp í dans og segja Einar og Sjálfstæðisflokkinn ekki ráða ferðinni

Píratar bjóða upp í dans og segja Einar og Sjálfstæðisflokkinn ekki ráða ferðinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðrún tekur slaginn við Áslaugu Örnu og Snorra

Guðrún tekur slaginn við Áslaugu Örnu og Snorra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Óhugur í Kolbrúnu vegna hugsanlegs samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn

Óhugur í Kolbrúnu vegna hugsanlegs samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn