fbpx
Miðvikudagur 05.febrúar 2025
Fréttir

Hulda María segir að þetta gleymist í umræðunni um verkföll kennara

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 5. febrúar 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hulda María Magnúsdóttir grunnskólakennari segir að í öllu því fréttafargani um verkföll kennara hafi lítið farið fyrir einum vinkli. „Það virðist nefnilega gleymast í allri þessari umræðu að mjög margir kennarar eru líka foreldrar sem þurfa samhliða kjarabaráttunni að koma eigin börnum fyrir vegna verkfalla,” segir hún í aðsendri grein á vef Vísi.

Eins og Hulda bendir á í grein sinni standa nú yfir verkföll í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum eftir árangurslausar samningaviðræður að undanförnu. Þá eru verkföll í nokkrum framhaldsskólum í bígerð.

Sumarlaunin skerðast

„Eðli málsins samkvæmt fara fréttamiðlar á stúfana og fjalla um verkföllin frá hinum ýmsu hliðum. Ég hef séð viðtöl við forsvarsfólk sveitarfélaganna, forsvarsfólk Kennarasambandsins, forsætisráðherra, menntamálaráðherra, kennara í verkfalli, nemendur í verkfalli og örugglega einhverja fleiri sem ég man ekki í augnablikinu. Það hefur líka farið mikið fyrir viðtölum við forsjáraðila nemenda í verkfalli, talað um hvað þetta komi illa við fjölskyldulífið, hvað þetta sé erfitt og mikið púsl, hvernig sumarfrísdagar eru að klárast og ömmur og afar að ferðast milli landshluta til að passa,“ segir Hulda og bætir svo við að lítið hafi verið fjallað um þá kennara sem einnig eru foreldrar.

„Ólíkt mörgum öðrum stéttum geta kennarar ekki nýtt sumarfrísdaga að vetri þar sem tímabil sumarfrísins er nánast meitlað í stein. Þeir kennarar sem þurfa að taka sér leyfi til að vera heima með börnum í verkfalli þurfa að taka það launalaust,“ segir hún.

Hulda bætir svo við að kerfið virki þannig að ef kennari tekur launalaust leyfi á skólaárinu þá skerðast sumarlaunin. Kennarinn sé því ekki bara að tapa tekjum yfir veturinn heldur líka sumarið og engin leið að vinna það upp að sumri þar sem skólar eru lokaðir.

Fólk beini pirringnum í réttan farveg

„Ég þekki persónulega nokkra kennara sem standa í nákvæmlega þessum sporum núna. Engan þeirra hef ég þó heyrt hallmæla kennurum barna sinna því við sem erum í þessari baráttu skiljum hvert annað og styðjum hvert annað. Það yljar hjartanu að lesa og heyra athugasemdir frá forsjáraðilum sem ekki eru kennarar en lýsa samt yfir fullum stuðningi við baráttuna, án þess að setja neina fyrirvara,“ segir hún.

Hulda kveðst skilja fólk sem berst fyrir menntun barnanna sinna. Bendir hún á að kennarar séu ekki bara að berjast fyrir menntun sinna barna heldur allra barna.

„Það væri alveg gott að sjá fólk beina pirringnum að þeim sem ekki hafa staðið við sitt, ríki og sveitarfélögum! Að ekki sé minnst á að sveitarfélögin eru daglega að brjóta á rétti þessara barna með því að hafa ekki menntaða kennara við störf í skólunum sem þau reka. Ég hef ekki séð neinar kærur á hendur sveitarfélögunum fyrir slíkt frá nýstofnuðum félögum foreldra og þó er það bundið í lög. Hafnarfjarðarbær gengur reyndar svo langt í nýrri auglýsingu að telja tvítugt fólk með hreint sakavottorð nægja til að sinna kennslu, ég veit ekki alveg hvort ég vil nota orðið metnaðarleysi eða ósvífni nema kannski bara hvort tveggja sé. Þó auglýsingin hafi verið tekin úr birtingu núna stendur hugsunin á bakvið hana eftir.“

Reiði, pirringur og svo þreyta

Hulda endar grein sína á að viðra áhyggjur sínar af þeirri þreytu sem hún er farin að skynja hjá kollegum sínum – og sjálfri sér. „Fyrst þegar við fórum af stað var það meira reiði og pirringur en núna er þreytan að taka yfir,“ segir hún og heldur áfram:

„Málið með reiðina er að hún rýkur upp og svo rýkur hún út. Þreytan hins vegar sígur á, hægt og bítandi, þar til fólk getur ekki meira. Fólk hættir að vera reitt og pirrað og verður bara þreytt. Þreytt á því að fá yfir sig alls konar ósmekklegar gusur í kommentakerfum, þreytt á því að þurfa sífellt að verja starfið sitt, þreytt á því að þurfa endalaust að útskýra að við erum ekki alltaf í fríi, þreytt á því að þurfa að vinna heima á kvöldin, þreytt á því að fá sífellt ný verkefni án þess að fá þær bjargir sem þarf til að leysa þau, þreytt á því að bíða eftir að margra ára loforð verði efnd. Á endanum verður fólk svo þreytt á þessu öllu að það mun einfaldlega hvorki hafa þrek né löngun í að verja sig lengur og einfaldlega segja upp og fagmenntað skólafólk mun hverfa til annarra starfa. Hafnarfjörður er þegar byrjaður að undirbúa slíkan flótta, vilja ríkið og önnur sveitarfélög í alvörunni fylgja þeim á þeirri vegferð?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs

Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Miðbæjarbúar skiptast í fylkingar eftir viðtal Íslands í dag við Ólaf og Esther – „Komin út fyrir allan þjófabálk“

Miðbæjarbúar skiptast í fylkingar eftir viðtal Íslands í dag við Ólaf og Esther – „Komin út fyrir allan þjófabálk“