Í gær var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur mál sem héraðssaksóknari hefur höfðað á hendur þrítugum manni, Steinari Viðarssyni, fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.
Steinari er gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á tæplega einu kílói af kókaíni. Flutti hann efnin í farþegaflugi frá Alicante á Spáni til Keflavíkurflugvallar. Efnin voru falin í farangurstösku Steinars þegar hann kom til landsins.
Héraðssaksóknari krefst refsingar yfir Steinari og að hann verði látinn greiða allan sakarkostnað. Ennfremur er krafist upptöku á efnunum, 995,38 g af kókaíni.