Réttarhöld eru hafin í Héraðsdómi Reykjaness yfir konu sem sökuð er um að hafa í starfi sínu sem skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn dregið sér rúmlega 8 milljónir króna af fé skólans og nýtt í eigin þágu, og dregið um 600 þúsund krónur af félagsmiðstöðinni Svarthol.
Meint brot stóðu yfir frá október 2016 til og með mars 2020. Fjárdrátturinn var framin í 74 afar misstórum millifærslum, sem og með notkun á debet-kortum og úttektum úr hraðbönkum. Stærsta millifærslan nam rúmum 1,2 milljónum króna en lægsta millifærslan 9 þúsund krónum.
„Rannsókn málsins hefur leitt í ljós að þeir fjármunir sem ákærða millifærði á eigin reikning af reikningum félagsmiðstöðvarinnar Svarthols og Grunnskólans á Þórshöfn, sbr. ákærukafla I.
og II., hafi farið til einkanota ákærðu,“ segir í ákæru málsins.
Konan bar vitni við réttarhöldin og varpaði fram skýringum á því hvers vegna fjármunir skólans og félagsmiðstöðvarinnar höfðu farið inn á hennar eigin persónulegu reikninga.
Hún kannast við að hafa framkvæmt viðkomandi millifærslur en segist hafa skýringar á þeim.
Konan hóf störf sem skólastjóri í ágúst 2016, áður en atvik málsins hófust. Hún lét af störfum í ágúst 2019. Yfimaður hennar var Elías Pétursson sveitarstjóri. Hún þurfti að sinna daglegum rekstri skólans og mannaforráðum. Fram kom að í vitnisburði að fjármál skólans voru á hennar könnu. Hún var síðan starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar Svarthols en þau störf hennar voru í sjálfu sér ótengd störfum hennar sem skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn. Varðandi fjármálin þar þá var kort í gangi sem starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar notuðu. Aðspurð um hverjir hefðu prókúru af reikningnum sagði hún að handhafar kortsins hafi getað notað það.
Aðspurð sagðist sakborningur í dag starfa sem deildarstjóri og knattspyrnuþjálfari. Hún viðurkenndi að hafa haft aðgang að fjárreiðum skólans. Fjármagn sem rann í gegn fór í að fjármagna ferðir nemenda og voru það verkefni sem voru sameiginleg með þremur öðrum skólum. Hún viðurkenndi einnig að hafa haft aðgang að reikningi félagsmiðstöðvarinnar.
Hana rekur ekki minni til að hafa haft aðgang að öðrum reikningum skólans en þeim sem hér um ræðir og hún hafði ekki aðgang að öðrum reikningum sveitarfélagsins. Hún sagðist ekki hafa haft aðgang að einkabanka fyrir reikning skólans né félagsmiðstöðvarinnar heldur gat millifært með debet-korti í gegnum hraðbanka. Hún viðurkenndi að hún ein hefði haft aðgang að umræddum debet-kortum. Hún segir að ábyrgðin hafi verið sín.
Hún viðurkenndi að bankareikningar sem var millifært inn á hafi verið hennar reikningar og ekki hafi aðrir haft aðgang að þeim.
Hún var spurð út í þann ákærulið þar sem hún er sökuð um að hafa millifært um 8 milljónir króna af reikningi skólans inn á eigin reikning í 64 millifærslum. Skólareikningurinn var stofnaður til að greiða fyrir skólaferðir nemenda en um var að ræða sameiginlegt verkefni Grunnskólans á Þórshöfn og þriggja annarra norrænna skóla. Hún segir að ekki hafi gengið að nota debetkort reikningsins á netinu t.d. til að panta flugferðir og hafi hún því ákveðið að láta greiðslur renna í gegnum sinn eigin reikning.
„Það vantaði einhverja tengingu við símanúmerið mitt,“ sagði hún varðandi það að kortið hafi ekki virkað á netinu en sagðist ekki muna þetta vel. Niðurstaðan hefði verið sú að hún léti viðskiptin fara í gegnum sína eigin reikninga. „Það voru að fara peningar inn og út af mínum reikningi,“ sagði hún.
„Ég gerði bara sama og hafði verið gert fram að þessu,“ sagði hún um þessa umsýslu.
„Ég framkvæmdi þessar millifærslur og ég hef lagt fram kvittanir og millifærslur upp á 10 milljónir og hef fengið höfnun á sex. Samt hef ég sýnt fram á með millifærslum, kvittunum og öðrum að ég lagði út fyrir þessum verkefnum. Ég hef aldrei verið kölluð að borðinu til að skýra þetta heldur hef bara fengið yfir mig lögfræðihótanir.
Ég hafði fullt af verkefnum og ég hef mínar skýringar. Þetta er mjög flókið mál. Það er mjög einfalt að segja að ég hafi stolið 9 milljónum og stolið einhverri ferð af börnum.“
Konan segir að þegar allt er tekið varðandi kvittanir og önnur gögn þá hafi hún verið nokkuð nálægt núllinu varðandi fjárhagsstöðu sína gagnvart þessum reikningum skólans og félagsmiðstöðvarinnar. Hún sagðist viðurkenna flækjustigið í þessum fjármálum hafi verið mikið.
Hún sagðist hafa verið dæmd fyrir fram í DV og Vísi og ekki sé tekið tillit til hennar skýringa.
„Ég hef sagt það allan tímann að bókhaldið hefði mátt vera betra,“ sagði hún.
Hún sagðist viðurkenna að hvergi hafi verið til skrifleg heimild til hennar um að leggja umrædda fjármuni inn á eigin reikning.
Aðspurð sagðist hún ekki kannast við að hafa misst prókúru á þeim reikningum sem hún er sökuð um að hafa dregið sé fé af. Saksóknari birti þá gögn þar sem kemur fram að hún hafi á tilteknum tímapunkti misst prókúru á reikningunum.
Saksóknari varpaði fram gögnum sem sýna fram á að hægt hafi verið að panta flugfar beint af umræddum reikningi skólans. „Við vorum í vandræðum með kortið,“ ítrekaði sakborningur og sagði að ekki hafi verið hægt að nota debet-kort skólans til að panta ferðir og miklu einfaldara hafi verið að gera þetta í gegnum hennar eigin reikninga.
Konan lýsti yfir ósætti við frétt sem Vísir birti á dögunum um málið þar sem kemur fram að ummerki um millifærslur af reikningi konunnar yfir á erlendar veðmálasíður. Var hún spurð út í þessar færslur. Segir hún að einstaklingur sér nákominn hafi verið haldinn spilafíkn sem hann sé laus við núna, ,“Ég er ekki spilafíkill,“ sagði hún.
Hún ítrekaði að hún hafi kvittanir fyrir öllum þeim útgjöldum sem eru á bak við millifærslurnar frá reikningi skólans yfir á hennar reikninga.