Evgenia og Vadim, 53 og 56 ára, urðu heimsmeistarar á listskautum árið 1994 en með þeim í vélinni var einnig 23 ára sonur þeirra, Maxim Naumov, sem varð í 5. sæti á heimsmeistaramóti ungmenna á listskautum árið 2020. Mail Online segir frá þessu.
Sjá einnig: Sýndi skilaboð frá eiginkonu sinni sem hún sendi skömmu áður en vélin brotlenti
Evgenia, Vadim og Maxim voru í Wichita til að vera viðstödd mót sem þar fór fram. Talið er að fleiri skautadansarar, þjálfarar og aðstandendur þeirra hafi verið í vélinni.
Evgenia og Vadim fæddust í Rússlandi og gengu í hjónaband árið 1995. Þau settust svo að í Bandaríkjunum árið 1998 þar sem þau hafa búið síðan.
Óttast er að allir 64 sem um borð voru í vélinni hafi farist sem og þeir fjórir sem voru um borð í herþyrlunni. Flugvélin fór í tvennt við áreksturinn og endaði brakið í Potomac-ánni sem er ísköld á þessum árstíma. Yfirvöld hafa staðfest að 19 lík hafi fundist.