fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fréttir

Var of lengi að fatta að bíllinn var ekki fjórhjóladrifinn

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 13:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur kveðið upp úrskurð í máli konu gegn fyrirtæki sem hún keypti bifreið af. Taldi konan sig vera að kaupa fjórhjóladrifna bifreið en tæplega þrjú ár liðu þar til hún áttaði sig á því að bifreiðin er ekki fjórhjóladrifin. Krafðist konan afsláttar af kaupverði bifreiðarinnar og að fyrirtækið breytti auglýsingum sínum þar sem þær væru villandi. Nefndin tók undir með konunni um að kynning fyrirtækisins á bifreiðinni hafi verið villandi en úrskurðaði henni þó í óhag, meðal annars á þeim grundvelli að hún hafi verið of lengi að átta sig á því að bifreiðin var alls ekki fjórhjóladrifin,

Kaupin fóru fram í september 2021 en konan sneri sér til nefndarinnar í ágúst 2024. Bifreiðin var ný og kostaði 4.390.000 krónur en konan fékk 400.000 króna afsláttur af kaupverðinu þar sem um sýningarbifreið var að ræða. Konan keypti einnig aukabúnað fyrir 360.000 krónur. Var endanlegt kaupverð ásamt bifreiðagjöldum alls 4.360.726 krónur. Konan staðgreiddi um 3/4 hluta kaupverðsins og setti síðan eldri bifreið sína upp í það sem stóð eftir.

FWD

Í kæru sinni sagðist konan hafa fengið sendan verðlista, yfir bifreiðar af umræddri tegund, frá fyrirtækinu áður en hún gekk frá kaupunum. Í vinstra horni verðlistans komi fram letrunin „4×4“. Þá hafi neðar verið að finna upptalningu á fjórum útfærslum af bifreiðinni. Hafi fyrri tvær útfærslurnar verið merktar FWD og síðari tvær AWD. Sagðist konan hafa fest kaup á útfærslu 1 sem merkt hafi verið FWD. Hafi hún talið sig vera að kaupa fjórhjóladrifna bifreið. Síðar hafi hún uppgötvað að bifreiðin væri aðeins framhjóladrifin.

Vísaði konan til þess að samkvæmt uppflettingu á skammstöfuninni FWD á alnetinu sé hún notuð bæði fyrir „four wheel drive“ (fjórhjóladrif) og „front wheel drive“ (framhjóladrif).

Konan sagði auglýsingu fyrirtækisins þar með hafa verið villandi og ekki í samræmi við réttmæta viðskiptahætti. Bifreiðin hafi verið gölluð þar sem hún hafi ekki haft þá eiginleika sem upplýst hafi verið um í aðdraganda sölunnar. Konan sagði það hafa verið forsendu fyrir kaupunum að bifreiðin væri fjórhjóladrifin og krafðist afsláttar af kaupverði bifreiðarinnar sem næmi verði fjórhjóladrifs í sambærilegum bifreiðum.

4WD

Í andsvörum sínum vildi fyrirtækið meina að algengara sé að nota skammstöfunina FWD yfir framhjóladrif fremur en fjórhjóladrif. Enn fremur sé það víðtekin venja hjá íslenskum söluaðilum að nota skammstöfunina 4WD eða AWD fyrir bifreiðar með fjórhjóladrifi.

Fyrirtækið fullyrti að það hefði aldrei veitt konunni þær upplýsingar fyrir kaupin að bifreiðin væri fjórhjóladrifin. Hún hafi þar að auki ekki leitað til fyrirtækisins vegna þessa fyrr en tæpum þremur árum eftir kaupin. Konunni hafi verið boðið, til að ljúka málinu á farsælan hátt, að bifreiðin yrði keypt til baka en hún hafi hafnað því.

Verðlistinn villandi

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa rýndi í verðlista yfir umrædda bifreiðategund frá árinu 2021, þegar konan keypti bifreiðina.

Í niðurstöðu nefndarinnar segir að í verðlistanum séu fjórar mismunandi útfærslur af bifreiðinni en efst í listanum sé mynd af bifreiðinni og í vinstra horni myndarinnar standi „4X4“. Þar fyrir neðan sé síðan gerð grein fyrir útfærslunum fjórum. Aftan við heiti þeirrar útfærslu sem konan keypti standi „FWD“ en „AWD“ fyrir aftan heiti tveggja annarra útfærslna.

Nefndin fellst á það með konunni að skammstafanirnar í verðlistanum hafi verið settar fram á villandi hátt við markaðsetningu á bifreiðinni. Fyrirtækið hafi ekki sýnt fram á að réttar upplýsingar hafi verið gefnar konunni við kaupin eða að upplýsingarnar hafi ekki haft áhrif á það að konan ákvað að festa kaup á þessari tilteknu bifreið.

Ósannað tjón

Nefndin er hins vegar ekki tilbúin til að fallast á að konan eigi að fá afslátt frá fyrirtækinu. Vísar nefndin til þess að konan hafi greitt 4.360.726 krónur fyrir bílinn.

Samkvæmt verðlistanum frá 2021 hafi fjórhjóladrifin bifreið af sömu tegund og bifreiðin sem konan keypti, en í annarri útfærslu, kostað alls 5.990.000 krónur. Af verðlistanum megi hins vegar ráða að nokkur munur hafi verið á meðfylgjandi aukabúnaði milli hinna fjögurra útfærslna. Konan hafi ekki lagt fram önnur gögn en verðlistann og ekki sé hægt að líta svo á hann varpi fullnægjandi ljósi á hvert raunverulegt fjárhagslegt tjón hennar vegna kaupanna er.

Á þeim grundvelli sem og því að það hafi tekið konuna tæplega þrjú ár að átta sig á því að bifreiðin væri í raun ekki fjórhjóladrifin sé ekki annað hægt en að hafna kröfu hennar um afslátt af kaupverði bifreiðarinnar.

Hvað varðar kröfu konunnar um að fyrirtækinu yrði gert að breyta auglýsingum sínum með því að fjarlægja merkinguna „4X4“ vísaði nefndin henni á Neytendastofu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland mætir Færeyjum
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Vilja stoppa áfengissölu á íþróttaviðburðum – „Fyrirmyndir í stúkunni séu líka til fyrirmyndar“

Vilja stoppa áfengissölu á íþróttaviðburðum – „Fyrirmyndir í stúkunni séu líka til fyrirmyndar“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

„Í morgun varð mannbjörg“

„Í morgun varð mannbjörg“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir