fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fréttir

Sigmar og Brynjar metast um styrkjamálið: „Þinn flokkur svamlar líka í súpunni“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 09:00

Sigmar Guðmundsson og Brynjar Níelsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru skiptar skoðanir meðal manna um styrkjamálið svokallaða sem kom upp á dögunum þegar greint var frá því að Flokkur fólksins hefði hlotið styrki undanfarin þrjú ár án þess að uppfylla lagaskilyrði um fjárstuðning hins opinbera við stjórnmálaflokka.

Síðar kom á daginn að fleiri flokkar hefðu þegið styrki úr ríkissjóði án þess að uppfylla þar til gerð skilyrði. Má þar nefna Sjálfstæðisflokkinn, VG, Sósíalista og Pírata.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, gerði málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni í gær eftir að greint var frá því að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, hefði kallað eftir rannsókn á styrkjum til stjórnmálaflokka.

„Sigurður Ingi er með þessu að biðja um rannsókn á því hvers vegna ráðuneyti í hans eigin ríkisstjórn blessaði þessa styrki án þess að skráning flokkanna væri rétt,“ sagði Sigmar í færslu sinni og skaut á Sjálfstæðismenn sem hafa farið mikinn í gagnrýni sinni.

Sjá einnig: Egill telur að mál Flokks fólksins sé stormur í vatnsglasi – Hallgrímur segir að Inga sæti stöðugu einelti

„Þeir sjálfstæðismenn sem hæst tala í þessu máli gagnrýna Flokk fólksins harkalega en skauta algerlega fram hjá því að þeirra eigin flokkur fékk greidda út styrki án réttrar skráningar. Styrkurinn til Sjálfstæðisflokksins var greiddur út þegar fjármálaráðherra flokksins hélt um veskið og bar sem slíkur þá ábyrgð sem fylgir setu í ráðuneytinu. Mistökin voru gerð í tíð síðustu ríkisstjórnar,“ segir Sigmar sem tekur þó fram að eðlilegt og sjálfsagt sé að Flokkur fólksins bregðist við og lagfæri þetta eins og Inga Sæland hefur sagt að verði gert.

Sjá einnig: Sigurjón segir að margir hafi hlaupið á sig – Nefnir meðal annars Sindra Sindrason og Dr. Football

Í athugasemd við færslu Sigmars sagði Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að Sigmar gleymi einu mikilvægu atriði.

„Allir flokkar fóru í vinnu við að uppfylla skyldur laganna strax, nema Flokkur fólksins. Það tók mislangan tíma að skila öllum gögnum því þetta snerist ekki bara um skrásetningu. Fyrir flokk eins Sjálfstæðisflokkinn, sem er með félög í hverjum landshluta og hverfi tekur eðlilega lengri tíma en fyrir ykkur hin sem eruð ekki með neina starfsemi svo heitið getur. Það var því eðlilegt að skráningin tæki lengri tíma þar. Að auki urðu tafir í kerfinu sjálfu sem flokkunum verður ekki kennt um. Tilgangurinn með þessum lögum var eftirlit með því að styrkirnir yrðu ekki notaðir í annað en lögin gerðu ráð fyrir. Það voru engin mistök gerð hjá þessum flokkum heldur sinntu skyldum sínum eftir því sem tök voru á. Sama verður tæplega sagt um Flokk fólksins þegar tvö ár eru liðin,“ sagði Brynjar.

Sigmar svaraði um hæl að allir þessir flokkar hefðu gert mistök en samt fengið greidda út styrki. Sjálfstæðisflokkurinn einnig.

„Nú ert þú að búa til einhverja fráviksreglu sem á að gilda af því þinn flokkur svamlar líka í súpunni. Allir flokkarnir hafa viðurkennt að þetta sé ekki gott og lagfært eða ætla að lagfæra skráninguna. Það finnst mér gott hjá þeim öllum, sjálfsagt og eðlilegt. Ég veit ekki hvernig þetta endar í ráðuneytinu, það skýrist væntanlega á næstu dögum. Mögulega kemur líka eitthvað út úr þessari rannsókn sem Sigurður er að boða á verklaginu sem tíðkaðist í tíð fyrri ríkisstjórnar,“ sagði Sigmar en Brynjar svaraði og benti á færslu sem hann skrifaði sjálfur í gær. Sagði Brynjar að hún kjarnaði þennan vanda ágætlega, þótt hann segði sjálfur frá.

Enduðu samskipti þeirra svona:

Sigmar: „Við höfum lag á því, vinirnir, að kjarna sannleikann snilldarlega með sitthvorum hætti. Þótt við segjum báðir sjálfir frá.“

Brynjar: „Mér finnst þú að vísu grauta soldið saman ólíkum hlutum en skiljanlegt.“

Sigmar: „Skemmtileg tilviljun því mér finnst þú einmitt svo valkvæður í gagnrýni þinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

„Í morgun varð mannbjörg“

„Í morgun varð mannbjörg“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hatrammar ofsóknir bróður enduðu með ósköpum eftir falskar ásakanir um barnaníð

Hatrammar ofsóknir bróður enduðu með ósköpum eftir falskar ásakanir um barnaníð
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Flugslys í Bandaríkjunum í nótt: Óttast að tugir hafi farist þegar farþegaflugvél lenti í árekstri við herþyrlu

Flugslys í Bandaríkjunum í nótt: Óttast að tugir hafi farist þegar farþegaflugvél lenti í árekstri við herþyrlu