Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir ýmislegt hægt að læra af skráningarmálinu svokallaða. Ekki orð sé að marka stjórnmálaumfjöllun Morgunblaðsins og margir hafi hlaupið á sig, meðal annars Dr. Football og Sindri Sindrason.
„Hvað getur fólk lært af þessu skráningarmáli?“ spyr Sigurjón í færslu á samfélagsmiðlum. En eftir að Morgunblaðið fjallaði um að Flokkur fólksins hefði fengið ríkisstyrk þrátt fyrir að vera skráður félagasamtök greindi Vísir síðan að Sjálfstæðisflokkurinn væri á meðal þeirra sem hefðu líka gert það.
„Því er fljótsvarað það er ekki orð að marka stjórnmálaumfjöllun Morgunblaðsins , en þessi aðgerðablaðamennska Andrésar Magnússonar, Stefáns Einars og Andreu Sigurðardóttur er komin á þann stað að þau geta með fullum sóma kallað sig falsfréttmenn,“ segir Sigurjón í harðorðri færslu. „það á m.a. við um hvernig blésu upp örlítinn formgalla á skráningu Flokks fólksins með afar ógeðfelldri framsetningu þar sem látið var í veðri vaka að eitthvert misferli væri í gangi. Nú er komið í ljós að fleirum en Flokki fólksins varð á hvað umrætt atriði varðar og ég tel að ganga megi að því vísu að það hafi „fréttamennirnir“ vitað allan þann tíma sem stórfurðulegur fréttaflutningur þeirra stóð yfir.“
Segir hann að fólkið í landinu sjái í gegnum það augljósa. Að ritstjórn Morgunblaðsins hafi ákveðið að gera Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, að skotmarki.
Þá segir Sigurjón að alls kyns „flokksþrælar“ og forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafi síðan endurvarpað þessu á opinberum vettvangi. Hafi jafn vel gefið í skyn að verið sé að taka fé ófrjálsri hendi.
„Meðal þeirra sem hafa hlaupið á sig eru; Jón Steinar Gunnlaugsson sem skrifaði ábúðarmikið bull um lögin og markmið þeirra. Áslaug Arna og Dr. football reyndu að gera sig breiða með því að veifa þessu bulli, fl. fl. má telja upp m.a. Sindra Sindrason flokksmaðurinn í Bítinu og jú Björn Bjarnason sem heiðraði FB-síðuna mína með því að bræla algera dellu um málið,“ segir Sigurjón að lokum. „Mun eitthvað af þessu fólki sem gekk hve lengst í að spinna delluna sjá sóma sinn í því að biðjast afsökunar?“
Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Flokks fólksins, gerði málið einnig að umtalsefni í færslu á samfélagsmiðlum.
„Segðu, hér er nokkuð sem allir vissu sem vildu vita. Sjálfstæðisflokkurinn fékk útgreiddan styrk án réttrar skráningar,“ segir Eyjólfur.
Nefnir hann þrjú atriði sem þurfi að laga hjá Flokki fólksins. Í fyrsta lagi þurfi að skrá lögheimili flokksins í samþykktir. Það sé Fjörgyn 1 í Grafarvogi og komi fram í fyrirtækjaskrá og víðar. Í öðru lagi ská hver ritar firma flokksins en í samþykktum segir að stjórn ráði framkvæmdastjóra og veitir honum prókúru. Í þriðja lagi þurfi að kveða á í samþykktum um kjör og kjörtímabil endurskoðanda og endurskoðunarfyrirtækja.
„Þegar búið er að setja þessi þrjú atriði í samþykktir þarf að senda þær til fyrirtækjaskrár, sem sér um skráningu stjórnmálaflokka,“ segir hann.